Fara í efni
Fréttir

Fleyttu kertum í minningu fórnarlamba

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Um 60 manns komu saman við Leirutjörn í Innbænum á Akureyri í gærkvöldi og fleyttu kertum til minningar um fórn­ar­lömb kjarn­orku­árás­a Bandaríkjanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Naga­sakí í ágúst árið 1945, „en líka standa með fórnarlömbum yfirstandandi árásarstríða – og mótmæla sívaxandi helsprengjuvá,“ eins og sagði í kynningu fyrir fundinn. 

Í gær var 81 ár síðan fyrri sprengunni var varpað, á Hiroshima, en þeirri seinni varpað á Nagasakí 9. ágúst. Áður en kertunum var fleytt las Þórarinn Hjartarson ljóðið Klukkurnar í Nagasakí eftir Hjört Pálsson, íslenskufræðing, sagnfræðing og skáld, og síðan flutti Hannes Sigurðsson  lagerstarfsmaður og friðarsinni ávarp sem hann lauk með þessum orðum: „Aldrei aftur Hírósíma! Aldrei aftur Nagasakí! Aldrei!“

Hannes Sigurðsson lagerstarfsmaður og friðarsinni flytur ávarp við Leirutjörn í gærkvöldi.

Þórarinn Hjartarson flutti ljóðið Klukkurnar í Nagasakí eftir Hjört Pálsson.


Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson