Fara í efni
Fréttir

Fleiri mega koma saman frá og með mánudegi

Breytingar verða á fjöldatakmörkunum vegna Covid frá og með næsta mánudegi skv. ákvörðun heilbrigðisráðherra sem kynnt var í dag. Fleiri mega koma saman en nú er, veitingastöðum er heimilt að hafa opið lengur og tilskakarnir verða gerðar á skólastarfi.

Breytingar á mánudaginn eru þessar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns. Börn fædd 2015 og síðar verði áfram undanþegin.
  • Nándarregla verði áfram almennt tveir metrar.
  • Grímuskylda og leiðbeiningar um grímunotkun óbreyttar. Börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.
  • Sund- og baðstaðir, skíðasvæði, tjaldsvæði og söfn opin fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 og síðar teljist ekki með.
  • Líkamsræktarstöðvar opnar fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, en ekki fleiri en 50 manns í hverju rými. Önnur skilyrði óbreytt.
  • Íþróttir: Hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum 75 í stað 50 í hverju hólfi.
  • Sviðslistir: Hámarksfjöldi þátttakenda 75 í stað 50 í hverju hólfi/á sviði.
  • „Sitjandi viðburðir“: Hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum, s.s. íþróttakappleikjum, sviðslistum, athöfnum trúar- og lífskoðunarfélaga, verður 150 manns í hverju sóttvarnahólfi í stað 100. Önnur skilyrði óbreytt.
  • Verslanir: Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum 200 manns í stað 100.
  • Veitingastaðir: Opnunartími lengist um klukkustund, frá kl. 21 til kl. 22. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23.00. 

Skólastarf:

  • Hámarksfjöldi fullorðinna 50 í hverju rými.
  • Hámarksfjöldi barna/nemenda verður 100 í hverju rými.
  • Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í skólana.
  • Blöndun milli hópa barna innan skóla heimil í sundi og íþróttum í grunnskólum.
  • Viðburðir fyrir utanaðkomandi heimilaðir með þeim takmörkunum sem almennt gilda.
  • Blöndun nemenda milli hólfa einnig leyfð í háskólum.