Fjölbreyttir tónleikar og nýjar listsýningar
Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Eitthvað er um að vera alla daga vikunnar og listinn verður uppfærður jafnóðum og fréttist af nýjum viðburðum.
Lokasprettur Listasumars á Akureyri er framundan, með alls konar viðburðum um allan bæ fyrir fólk á öllum aldri. Þetta er síðasta vika Listasumars og ókeypis er á alla viðburði. Yfirlit yfir viðburði Listasumars má finna á þessari síðu en hér að neðan er stiklað á stóru, inn á milli annarra viðburða í bænum.
Tónleikar
- EDELSTEIN I VOGLER – Akureyrarkirkju, mánudaginn 13. júlí kl. 20-21. Alexander Smári Kristjánsson Edelstein píanóleikari og Erla Dóra Vogler mezzosópran, sem bæði eru af þýsk-íslenskum ættum, halda tónleika með úrvali þýskra og íslenskra söngljóða.
- Kjass í Hofi – Majó, Hofi, miðvikudaginn 15. júlí kl. 16-17. Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir og Daníel Starrason flytja létta blöndu af djass og dægurlögum ásamt nokkrum vel völdum Kjass molum.
- Tríó Akureyrar – Ketilkaffi, Listasafninu, fimmtudaginn 16. júlí kl. 16-17. Tríó Akureyrar flytur m.a. „lög um sjóðheita íslenska sveitarómantík, náttúru, framhjáhald, hesta, dans og sjómennsku,“ segir í kynningu. Tríóið skipa Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkuleikari, Valmar Väljaots allskonar leikari og Erla Dóra Vogler söngkona.
- Pitenz í strætó – Leið 5 frá miðbæ, föstudaginn 17. júlí kl. 17:25. Stígið um borð í strætisvagn númer 5 og njótið raftónlistar hringinn í kring um Akureyri. Pitenz mun syngja og spila í gegnum Glerárhverfi, Síðuhverfi, Lundahverfi, Brekkuna og Naustahverfi og er öllum frjálst að stíga inn eða út úr strætó þar sem þeim sýnist.
- Útitónleikar LYST - Daði Freyr ásamt Sturla Atlas – Lystigarðinum, laugardaginn 18. júlí kl. 21. Sumar & bjórhátíð LYST endar með útitónleikum í Lystigarðinum þar sem Daði Freyr stígur á svið ásamt Sturla Atlas.

Daði Freyr og Sturla Atlas verða með útitónleika í Lystigarðinum á laugardagskvöld.
- HAM – Græna hattinum, laugardag 18. júlí kl. 21. Drungarokksveitin HAM heimsækir varnarþing sitt á Norðurlandi á Græna Hattinum. Leikin verður gömul músik og einnig ný. Kunnuglegir taktar og nýstárlegir í bland, segir í kynningu.
- Sumartónleikar - Tríó Öræfi – Akureyrarkirkju, sunnudaginn 19. júlí kl. 17-18. Tríó Öræfi er skipað Sóleyju Þrastardóttur þverflautuleikara, Þórunni Harðardóttur víóluleikara og Ásdísi Arnardóttur sellóleikara. Ásamt Arnaldi Arnarsyni gítarleikara flytur tríóið verk eftir Josef Kreuzer, Franz Schubert/W. Matiegka og Nicolo Paganini. Auk þess frumflytja fjórmenningarnir nýtt verk eftir Oliver Kentish, sem pantað var í tilefni 40 ára afmælis Sumartónleika í Akureyrarkirkju.

Tríó Öræfi koma fram á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju á sunnudag, ásamt Arnaldi Arnarsyni.
Viðburðir
- Bókmenntaganga - saga og raddir kvenna – Frá Amtsbókasafninu, mánudaginn 13. júlí kl. 15. Gangan hefst og endar við Amtsbókasafnið og er um klukkutími að lengd. Í göngunni verða lesin textabrot úr verkum eftir konur og eru þátttakendur hvattir til þess að taka þátt í upplestrinum. Að lokninni göngu verður bókmenntagöngupakki fáanlegur til útláns á Amtsbókasafninu með fjórum mismunandi gönguleiðum.
- Kristín Sigfúsdóttir - 150 ára afmælislestur – Helgastaðir, Eyjafjarðarsveit, mánudaginn 13. júlí kl. 16. „Við fögnum 150 ára afmælisdegi Kristínar Sigfúsdóttur skáldkonu með unaðsstund við æskustöðvar hennar að Helgastöðum í Eyjafjarðarsveit.
Fram koma Sara Dögg Sindradóttir og Teitur Baldursson sem bæði hlutu verðlaun úr ritgerðarsjóði Kristínar Sigfúsdóttur í Hrafnagilsskóla. María Pálsdóttir les úr verki Kristínar, Pastelhöfundurinn Mars Baldurs úr nýútkomnu eigin verki og Kristín Þóra fjallar stuttlega um ævi skáldkonunnar og afmælisbarnsins,“ segir í kynningu. Gestir þurfa að klæða sig eftir veðri. - Aqua Zumba á Listasumri – Aqua Zumba er frábær hreyfing í vatni við skemmtilega tónlist fyrir alla. Þórunn Kristín, Aqua Zumba kennari, mun bjóða upp á opinn tíma í tilefni Listasumars 2026. Allir geta tekið þátt og skemmt sér, segir í kynningu.
- Línudagurinn – Amtsbókasafninu, miðvikudaginn 15. júlí kl. 10-17. Línudagurinn haldinn hátíðlegur í tilefni 80 ára afmælis sögunnar um Línu Langsokk í fyrra. Fjölbreytt dagskrá verður í boði; ratleikur, sokkamálun, myndabás, leikir fyrir krakkana, sögustund og fleira.

Línudagurinn verður haldinn hátíðlegur á Amtsbókasafninu á miðvikudaginn, í tilefni 80 ára afmælis sögunnar um Línu Langsokk.
- Blue Moon - tónleikar, myndlistarsýning og markaður – Minjasafnskirkjunni, fimmtudaginn 16. júlí kl. 15-18. „Á Íslandi er sjaldgæft að sjá tunglið á sumrin svo við höfum ákveðið að heiðra tunglið og bjóða upp á einstaka og mystíska upplifun sem samanstendur af frumsaminni tónlist, leiklist og myndlist. Akureyrski Stefán Elí og ástralska Esha Fae eru bæði fjöllistafólk sem starfa við tónlist og myndlist og ferðast víða um hnöttinn,“ segir í kynningu.
- Mannfólkið breytist í slím – Dalsbraut 1, fimmtudag 16. júlí til sunnudags 19. júlí. „Mannfólkið breytist í slím er háskalegasta menningarverkefni Akureyrar sem aldrei fer fram á sama stað. Fyrir níundu umbreytingu mannfólksins í slím verður fyrrum þungamiðu norðlensks iðnaðar umturnað í suðupott neðanjarðarsenunnar. Hátíðin er framkvæmd af listasamlaginu MBS og á sér fáar hliðstæður í menningarlandslaginu,“ segir í kynningu. Fjölbreytt dagskrá frá kl. 20 öll kvöldin en hátíðarsvæðið er opnað kl. 19.
- Sumar & bjórhátíð LYST – Lystigarðinum, laugardaginn 18. júlí. Sumar & bjórhátíð LYST 2026 fer fram helgina 17.–19. júlí í Lystigarðinum á Akureyri. „Þetta verður helgi full af bjór, mat, tónlist og góðri stemningu um allan bæ - með LYST í Lystigarðinum sem aðalmiðju hátíðarinnar,“ segir í kynningu.

„Mannfólkið breytist í slím“ hátíðin verður haldin í níunda sinn frá fimmtudegi til laugardags.
Listsýningar
- Í ágripi // Synopsis – Deiglan. Í þessari seríu lágmynda fangar Toggi / Þorgeir Ólason óræðar tilfinningar og upplifanir úr eigin lífi. Öll verkin á sýningunni eru unninn á kopar, þar sem listamaðurinn beitir ætingu eða patineringu til að framkalla fjölbreytt óhlutbundin form, liti og línur. Sýningin opin 7.-16. júlí kl. 13-17.
- Fylling í tilveruna - Leyni. Málverkasýning Brynju Harðardóttur Tveiten. Sýningaropnun fimmtudaginn 16. júlí kl. 20-22. Brynja fléttar saman eigin texta, skrift og myndlist. Verkin eru litsterk og myndbyggingin einföld þar sem setningin „við erum öll fylling í tilveruna“ er skrifuð aftur og aftur. Verkin endurspegla hugleiðingar Brynju um hringrás lífsins, hvernig við erum samofin náttúrunni og hluti af stærri heild, óháð tíma og rúmi, lífi og dauða, segir m.a. í kynningu. Sýningin er opin til 30. júlí.
- Allt frá englum í abstrakt - Deiglan. Hulda Ólafsdóttir sýnir akrýlmyndir. Sýningaropnun föstudaginn 17. júlí kl. 16-20. Myndefnið er fjölbreytt; allt frá englum í abstrakt, blóm, landslag, andlit eða það sem mig hefur langað til að gera þá stundina, segir í kynningu. Sýningin er einnig opin laugardaginn 18. júlí og sunnudaginn 19. júlí kl. 13-17.
- LEYSING - samsýning – Mjólkurbúðin. Anna Jóa, Hulda Ágústsdóttir og Ragnheiður Hrafnkelsdóttir sýna ný verk. „Þó að þær vinni með ólíka miðla og nálgist hlutina á mismunandi hátt þá eru í verkum þeirra allra merkingarþræðir sem tengjast skynjun og/eða umbreytingu fyrirbæra í hugarheimum og hversdegi,“ að því er segir í kynningu. Sýningin er opin laugardaginn 18. júlí og sunnudaginn 19. júlí kl. 14-17.
- Hédna – Menningarhúsinu Hofi. Sýning sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Sýningin er opin til 16. ágúst 2026.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Zimoun – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Saga Íslands: 2. hluti – Eiríkur Páll Sveinsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Guð launi þér – Úlfur Logason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Sýning um heilagan fugl – Örlygur Kristfinnsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Andlegar verðmætavindur Magnúsar – Magnús Helgason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- S-I-L-I-C-A-0-3 – Hulda Rós Guðnadóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Opnun ársins – Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.

Hulda Ólafsdóttir opnar sýningu á akrýlmyndum í Deiglunni á föstudaginn.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.