Fara í efni
Menning

Fjölbreyttar sýningar á Safnasafninu

Myndir: Safnasafnið
Safnasafnið á Svalbarðsströnd vaknaði af vetrardvala um fyrri helgi þegar fjöldi sýninga var opnaður og verður safnið opið alla daga frá klukkan 10.00 til 17.00 þar til 4. október.
 
Logi Einarsson, menningar, -nýsköpunar, -og háskólaráðherra opnaði sýningarnar formlega, Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands flutti stutt ávarp og Níels Hafstein, safnstjóri Safnasafnsins, kynnti dagskrá sumarsins.
 

Listafólk með einkasýningar í Safnasafninu í ár eru Auður Lóa Guðnadóttir, Bjarni H. Þórarinsson (1947–2025), Gunnar Einarsson (1922–2008), Haukur Halldórsson (1937–2024), Hrafnkell Sigurðsson, Jón Laxdal (1950–2021), Rósa Sigrún Jónsdóttir, Tómas Jónsson, Þórður G. Valdimarsson – Kiko Korriro (1922–2002) og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.

„Safnasafnið leggur áfram áherslu á fjölbreytni, inngildingu og samtal milli ólíkra forma myndlistar þar sem verk eru metin á eigin forsendum, óháð menntun, stöðu eða uppruna listafólks,“ segir í tilkynningu frá safninu.

Sýningar ársins 2026

 

Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, Logi Einarsson, menningar, -nýsköpunar,- og háskólaráðherra, og Níels Hafstein, safnstjóri Safnasafnsins.