Fjölbreytt dagskrá í tilefni sjómannadagsins

Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag og af því tilefni verður fjölbreytt dagskrá á Akureyri um helgina; bæði laugardag og sunnudag í „Innbænum“ en í Hrísey og Grímsey á sunnudaginn.
Dagskrá sjómannadagshelgarinnar er annars sem hér segir:
Laugardagur 31. maí
9.30 - 13.00 – Sandgerðisbót
- Verbúðir í Sandgerðisbót opnaðar, trillukarlar bjóða upp á sjávarsmakk
- Karlakór Akureyrar-Geysir syngur sjómannalög
- Grillaðar pylsur í boði Kjarnafæðis, Myllunnar og Nettó, og kók í boði
- Fiskasýning
- Bátabryggjurnar opnaðar og bátar til sýnis
- Landsbjörg sýnir sjóbjörgunarbúnað
- Kennt að splæsa tóg
- Netabætingar
- Hoppukastalar fyrir börnin
- Skipslíkön verða til sýnis
- Ljósmyndasýning Vitafélagsins
11.00 - 13.00 – Útgerðarfélag Akureyringa
- Afmæliskaffi í matsal fiskvinnsluhúss ÚA í tilefni 80 ára afmælis félagsins.
- Gestir geta skoðað fiskvinnsluna
- Togarinn Kaldbakur EA 1 verður einnig opinn gestum á þessum tíma
17.00 – Minningarsigling með Húna
Látinna sjómanna minnst. – „Það vaxa ekki blóm á leiðum sem liggja í votri gröf.“ – Blóm lögð í sjóinn á vinnustað sjómanna eftir minningarstund séra Magnúsar Gunnarssonar sóknarprests í Laufási. Öll velkomin meðan skipspláss leyfir. Muna að koma með blóm með sér.
Sunnudagur 1. júní – Sjómannadagurinn
08.00 – Fánadagur
- Bæjarbúar draga fána að hún
11.00 – Sjómannadagsguðþjónusta
- Messa í Glerárkirkju.
- Að athöfn lokinni verður blómsveigur frá sjómönnum lagður að minnismerki látinna sjómanna. Súpa í Safnaðarheimili í boði sjómannafélags Eyjafjarðar eftir athöfn.
13.00 – Afmælissýning ÚA
- Sýning opnuð í Iðnaðarsafninu á Akureyri í tilefni 80 ára afmælis Útgerðarfélags Akureyringa. Á sýningunni er saga og starfsemi félagsins rakin í máli, munum og myndum.
- Húsnæði Iðnaðarsafnsins er á Krókeyri. Frítt er inn á sýninguna þennan dag.
13.00 – Hópsigling smábáta og Húna II
- Húni siglir með bæjarbúa og hópsigling smábáta.
- Öll velkomin.
- Farið verður í fleiri ferðir ef aðsóknin verður góð.
GRÍMSEY
Kvenfélagið Baugur heldur kaffihlaðborð í félagsheimilinu Múla á sunnudeginum.
- 10.00 Sigling
- 11.11 Sjómannadagsmessa í Hríseyjarkirkju, sjómaður heiðraður
- 12.00 Ferjumenn grilla pylsur á svæðinu, tæki björgunarsveitar og slökkviliðs til sýnis
- 13.00 Leikir og sprell á svæðinu og við smábátahöfnina
- 14.00 Opnun ljósmyndasýningarinnar Fegurð fjarða á Verbúðinni 66
- 15.00 Kaffisala í Íþróttamiðstöðinni
- 16.00 Sigling fyrir börnin á björgunarbátnum Kidda