Fara í efni
Menning

Fjallið Kerling séð frá Fujian héraði í Kína

Aðalsteinn Þórsson listamaður og sýnishorn af mynd hans af Kerlingu. Aðsendar myndir

Undir áhrifum frá Hokusai, sem gerði einhverja mikilvægustu grafík seríu listasögunnar á fjórða áratug nítjándu aldar með seríunni Þrjátíu og sex sýnir á fjallið Fuji, gerði Aðalsteinn Þórsson myndlistamaður þrjár blek og vatnslita myndir af fjallinu Kerlingu séða frá Fuijan héraði í Kína. Myndirnar verða sýndar í Dyngjunni - listhúsi í Eyjafjarðarsveit, en sýningin opnar á morgun, laugardaginn 5. júlí kl. 18.00.

Myndirnar vann Aðalsteinn eftir minni á meðan vinnustofudvöl hans og Örnu Guðnýjar Valsdóttur í borginni Xiamen í Fujian héraði í Kína stóð, frá miðjum janúar fram í miðjan maí nýliðinn. Þær eru unnar eftir hefðbundnum kínverskum aðferðum eftir því sem honum var unnt sem listamaður þjálfaður eftir vestrænni myndlistar hefð. Kínversk landslagshefð er ólík þeirri vestrænu og snýst ekki um að koma frá sér sem raunverulegastri mynd af landslaginu, heldur tjáningu þess á pappírinn, en það sama gildir um þessar myndir Aðalsteins af Kerlingu. Auk þessarar litlu seríu verða aðrar myndir frá dvölinni í Kína sýndar, málaðar með sömu aðferð. Til gamans má geta að viðtal um Kínadvölina við þau hjónin, Aðalstein og Örnu, er væntanlegt á Akureyri.net á næstunni.

 

Kínversk landslagsmyndlist leitast eftir að túlka staðina á einfaldan hátt, en Aðalsteinn hafði það að leiðarljósi þegar hann hugsaði til Kerlingar frá Kína. Mynd: aðsend

Fjallið Kerling er eina fjallið yfir 1500 metrum á landinu sem rís beint af láglendi. Gestir sýningarinnar fá svo að njóta fyrirmyndarinnar beint í æð, þar sem Kerling rís tignarlega að baki Dyngju - listhúss. Aðalsteinn horfði á Kerlingu heiman frá sér í æsku en sá aðeins hluta hennar, því séð út um eldhúsgluggann í Kristnesi þar sem hann er borinn og barnfæddur, bar Bóndann hærra við himin þótt hann sé tæpum tvöhundruð metrum lægri.

Aðalsteinn Þórsson er fæddur árið 1964 í Eyjafirði. Hann útskrifaðist frá Myndlistardeild Myndlistarskólans á Akureyri árið 1993 og lauk MFA-gráðu í óháðri myndlist frá hollenska listaháskólanum, ArtEz, þá AKI2 í Enchede, Hollandi árið 1998. Síðan þá hefur Aðalsteinn verið starfandi listamaður. Hans athafnasvæði var áfram í Hollandi árin eftir nám en hann flutti aftur til Íslands árið 2016 og hefur verið búsettur hér síðan. Aðalsteinn hefur verið virkur í sýningahaldi, haldið einkasýningar tekið þátt í samsýningum og viðburðum, auk þess að vera sýningarstjóri. Hann hefur einnig verið virkur í félagsmálum og menningargeiranum. Helsta verkefni hans er þó Einkasafnið, umhverfisverk sem hann rekur í gróðurvini í Eyjafirði, 10 km sunnan við Akureyri.

Myndirnar eru allar unnar með bleki og vatnslitum á xuan pappír. Verkin eru til sölu. Sýningin verður opin á opnunartímum Dyngjunnar, það er enginn aðgangseyrir og hún er öllum opin. Sýningarstjóri er Guðrún Hadda Bjarnadóttir.

Verkefnið var framkvæmt með stuðningi frá: Mugg, samstarfsverkefnis SÍM, Myndstefs og Reykjavíkurborgar og Eyjafjarðarsveit.