Fara í efni
Fréttir

FISK Kompaní lokar búðinni á Glerártorgi

Eigendur FISK Kompanís hafa ákveðið að loka verslun fyrirtækisins á Glerártorgi en starfsemi í höfuðstöðvunum við Kjarnagötu verður að sjálfsögðu óbreytt, að sögn Ólafar Ástu Salmannsdóttur sem á og rekur fyrirtækið ásamt eiginmanni sínum, Ragnari Haukssyni.

„Við opnuðum á Glerártorgi fyrir tæpum fimm árum og nú er leigusamningurinn að renna sitt skeið,“ segir Ólöf Ásta við akureyri.net. „Við höfum ákveðið, að vel ígrunduðu máli, að endurnýja leigusamninginn ekki. Við höfum átt mjög góð ár á Glerártorgi og samstarfið þar hefur verið mjög gott. Við erum afar þakklát fyrir þær góðu móttökur sem verslunin þar hafði fengið og viljum sérstaklega þakka viðskiptavinum okkar fyrir frábær viðskipti sem heimsóttu okkur þangað,“ segir Ólöf og bætir við: „Við höldum áfram að taka vel á móti öllum á okkar gamla stað þar sem við erum með opið frá klukkan 9 til 18:30 alla virka daga og frá klukkun 9 til 18:00 á laugardögum.“