Fréttir
Fimm í haldi lögreglu vegna þriggja mála
15.06.2025 kl. 13:45

Fimm eru í haldi lögreglunnar á Akureyri vegna rannsóknar þriggja aðskildra mála, tveggja kynferðisafbrotamála og líkamsárásar í bænum um helgina. Þetta kemur fram á mbl.is í dag.
Um 40 manns voru teknir fyrir of hraðan akstur um helgina á Akureyri og í nærsveitum, að því er mbl hefur eftir varðstjóra hjá lögreglunni.
Mikið er um að vera í bænum þessa dagana; Bíladagar standa fram á þriðjudag og fjöldi fólks er einnig í bænum vegna júbílantahátíða gamalla stúdenta frá MA, og brautskráningar frá skólanum 17. júní.