Fara í efni
Fréttir

Ferðasjóður stofnaður fyrir íþróttabörn

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Ákveðið hefur verið að stofna ferðasjóð til að auðvelda börnum á Eyjafjarðarsvæðinu þátttöku í íþróttastarfi óháð efnahag og búsetu. Sjóðnum verður formlega hleypt af stokkunum í haust en tvö fyrirtæki, Samherji og atNorth, lögðu í gær fram stofnframlag sjóðsins – 10 milljónir króna.

Stofnendur sjóðsins eru annars vegar Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og hins vegar svæðisstöð Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) á Norðurlandi eystra. Heimir Örn Árnason sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ átti hugmyndina að sjóðnum og hann vonast til þess að framtakið hvetji fyrirtæki í öðrum landshlutum til að koma á fót sambærilegum sjóðum í samstarfi við fyrirtæki.

„Ferðasjóðurinn mun styðja við fjölskyldur til að standa straum af ferðakostnaði sem fylgir þátttöku í íþróttamótum og æfingum og stuðla þannig að auknum og jöfnum tækifærum barna til íþróttaiðkunar,“ sagði í tilkynningu sem birt var á vefjum Samherja og ÍBA í morgun.

Heimir Örn Árnason, stjórnarmaður í ÍSÍ, Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, og Jóna Jónsdóttir, formaður Íþróttabandalags Akureyrar, þegar gengið var frá samkomulagi um stofnun ferðasjóðsins. Mynd af vef Samherja

Mikilvægt framfaraskref 

Heimir Örn segir stofnun sjóðsins mikilvægt framfaraskref fyrir börn og unglinga á Eyjafjarðarsvæðinu. „Það er afar mikilvægt að stofna slíkan sjóð sem gefur enn fleiri börnum og unglingum möguleika á að mæta á öll mót og taka þannig fullan þátt í íþróttastarfinu,“ segir hann.

Unnið er að gerð úthlutunar- og verklagsreglna fyrir hinn nýstofnaða ferðasjóð. Stefnt er að því að honum verði formlega hleypt af stokkunum í haust og að úthlutun geti hafist samtímis. 

Samfélagið standi vörð um íþróttastarf barna

Forsvarsmenn Samherja og atNorth segja mikilvægt að samfélagið standi vörð um og styðji við íþróttastarf barna.

„Foreldrar barna í Eyjafirði eiga ekki að þurfa að hætta við þátttöku í mótum eða leikjum vegna fjarlægðar og kostnaðar. Með stofnun sjóðsins viljum við stuðla að því börn í Eyjafirði eigi þess kost að mæta á mót og keppa í sinni íþrótt,“ er haft eftir Baldvin Þorsteinssyni forstjóra Samherja og Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni forstjóra atNorth, í áðurnefndri tilkynningu. „Við viljum leggja okkar af mörkum til þess að sem flest börn geti tekið þátt í íþróttum og notið þeirra tækifæra sem íþróttastarf skapar. Við vonum jafnframt að fleiri fyrirtæki sjái sér fært að styðja við þetta mikilvæga samfélagslega verkefni.“