Ferðafólk vill fá stimpil frá Akureyri
Þar sem vegabréf eru víða ekki lengur stimpluð við landamæri leita ferðalangar í auknum mæli eftir opinberum eða hálfopinberum stimplum frá upplýsingamiðstöðvum, söfnum, þjóðgörðum og öðrum áfangastöðum. Stimplarnir verða þannig persónulegar ferðaminningar sem minna á staðina sem heimsóttir voru.
Á Akureyri hefur verið boðið upp á svona stimplun í Upplýsingamiðstöðinni í Hofi undanfarin fjögur ár en stimpillinn er ókeypis og stendur öllum gestum til boða. „Fyrst þegar fólk fór að spyrja um stimplun áttaði ég mig ekki alveg á því hvað það var að biðja um,“ segir Nanna Lind Svavarsdóttir, starfsmaður Upplýsingamiðstöðvar Akureyrar. Þegar í ljós kom að fólk var ekki að biðja um alvöru stimplun í vegabréf heldur aðeins til minningar segir hún að þá hafi verið útbúinn sérstakur stimpill fyrir upplýsingamiðstöðina með skjaldarmerki Akureyrar og vefslóðinni Visit Akureyri.
Safna stimplum frá ferðalögum sínum
„Fólk er bara að safna ferðaminningum og þar sem við fáum ekki stimpla í vegabréfin okkar lengur þá eru þessir stimplar eins og hvert annað safn. Það er enginn sérstakur hópur sem sækist eftir þessum stimplum, þetta er alls konar fólk sem dregur upp lítil minningarvegabréf eða bækur og biður um stimplun. Stundum koma gestir með bækur sem eru þegar orðnar fullar af stimplum víðsvegar að úr heiminum og það er gaman að sjá það. Nýlega kom hingað ung stúlka sem bað ekki aðeins um stimpil heldur vildi einnig fá að stimpla sjálf, sem henni fannst æðislegt.”

Nanna Lind segir að stundum komi fólk með bangsa eða aðrar fígúrur sem það ferðast með og vill fá mynd og stimpil í vegabréf viðkomandi. Þessi mynd var tekin í Ráðhúsinu árið 2022 en þá var ferðafólk þar á ferð með bangsann Niko sem vildi stimpil í sitt vegabréf. Ástæðan fyrir ferðalagi bangsans var sú að hjónin Regina og Fred Thiel sem ferðuðust með bangsann áttu vin sem var með Parkinsonsjúkdóminn. Hann gat af þeim sökum ekki ferðast um heiminn í eigin persónu en gerði það í gegnum ferðir Nikos. Mynd: Facebooksíða Akureyrarbæjar.
Gestum finnst bærinn hreinn
Nanna segir að sumarið í Upplýsingamiðstöðinni hafi annars farið ágætlega af stað þótt stemningin virðist örlítið rólegri en undanfarin ár. „Svo koma þessir brjálæðislegu dagar inn á milli, þannig að þetta sveiflast mikið.“ Eftir fimm ár í Upplýsingamiðstöðinni og enn lengri reynslu af því að starfa með ferðamönnum segir hún skemmtilegt að sjá hversu ólíkur gestahópurinn getur verið. „Í sumar höfum við tekið eftir því að okkur finnst Kanadamenn sérstaklega skemmtilegir gestir. Það er bara einhver góð stemming yfir þeim.“ Algengasta hrósið sem hún heyrir frá erlendum gestum er að Akureyri sé fallegur og einstaklega hreinn bær. „Það er mjög gaman að heyra það.“
Aðspurð hvað mætti helst bæta fyrir ferðamenn í bænum nefnir Nanna tvennt. „Það vantar sýnilegan póstkassa í miðbænum. Við erum spurð út í hann á hverjum degi og fólk á erfitt með að finna hann.“ Einnig telur hún skorta opinbera farangursgeymslu stutt frá þar sem rútur stoppa. „Fólk sem er á leið í rúturnar vill ekki fara með farangurinn um allan bæ. Það væri mikil bót að hafa aðgengilega geymsluskápa fyrir ferðamenn í miðbænum.“

Svona lítur stimpilinn út sem ferðamenn fá í Upplýsingamiðstöðinni á Akureyri.
Alþjóðleg tískubylgja sem byrjaði í Japan
- Að safna stimplum frá ferðamannastöðum er alþjóðlegt fyrirbæri, en margir rekja vinsældir þess til Japans. Þar í landi hafa svokallaðir eki-stimplar verið á lestarstöðvum í áratugi og ferðalangar safna þeim í sérstakar stimpilbækur. Í dag má finna slíka stimpla á þúsundum lestarstöðva, auk safna, kastala, þjóðgarða, upplýsingamiðstöðva og annarra ferðamannastaða.
- Í Japan er einnig löng hefð fyrir goshuin, fallega skreyttum stimplum og skrautskrift sem gestir fá í hofum og helgidómum sem minning um heimsókn sína.
- Samfélagsmiðlar á borð við Instagram og TikTok hafa síðan ýtt undir nýja bylgju þar sem ferðalangar safna stimplum sem persónulegri ferðadagbók. Sumir skipuleggja jafnvel ferðir sínar eftir því hvar hægt er að bæta nýjum stimpli í safnið.