Fara í efni
Menning

Fékk Drangey í arf og seldi Skagafjarðarsýslu

SÖFNIN OKKAR – 119

Frá Héraðsskjalasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Margir eiga í hugskotinu þá mynd að skjöl séu gömul blöð, kannski krumpuð og gul og jafnvel með rauðum innsiglum. Eins er hugmyndin um að flest skjöl hafi fundist milli þilja í gömlum húsum og komið í ljós við endurbætur húsanna lífsseig. Við sem vinnum við skjölin vitum, að vissulega eru til skjöl með innsiglum og líka þekkjum við dæmi þess að skjöl hafa verið notuð til þess að laga gólfhalla eða hafa fundist inni í veggjum. Stærsti hluti skjalanna í geymslum skjalasafnanna eru samt bara venjuleg útlits s.s. opinber og persónuleg bréf, fundargerðabækur, ritgerðir skrifaðar í stílabækur, alls konar samningar, einkunnablöð, dagbækur o.s.frv. og hafa komið á söfnin með nokkuð hefðbundnum hætti. Það er samt eitthvað heillandi við skjöl með innsiglum og ef skjölin eiga sér óvenjulega sögu er gaman að segja frá því. Svo er einmitt með skjalið frá okkur að þessu sinni.

Í aðfangabók safnsins kemur fram að í júní 1991 hafi Birkir Björnsson afhent skjöl sem fundust uppi á háalofti í versluninni Höfn á Akureyri og þar á meðal voru bréf og fleiri pappírar frá Jakobi V. Havsteen frá árunum 1874-1920.

Húsið þar sem skjölin fundust var byggt árið 1926 af Kristjáni Kristjánssyni bílakóngi Akureyrar og var fyrirtæki hans, Bifreiðastöð Akureyrar, þar til húsa. Þá stóð húsið u.þ.b. rétt austan við húsið sem margir þekkja sem Landsbankahúsið við Ráðhústorg, þótt bankinn sé kominn annað núna.

Árið 1955 var „Bifreiðastöðin“ flutt af upphaflegum byggingarstað í því skyni að opna leið úr Geislagötu inn að Ráðhústorgi og við það tækifæri keypti Oddur Ágústsson húsið, lét setja það niður bak við Strandgötu 6 og opnaði þar verslunina Höfn. Oddur var eftir það þekktur sem „Oddur í Höfn“ og búðin með heimilisfangið Hafnarbakkinn a.m.k. fyrst í stað. Rúmum 30 árum síðar (1986) var húsið aftur orðið fyrir, þurfti að víkja fyrir stórhýsi við nýja götu þ.e. Hofsbót 4. Þá var húsinu lyft af grunninum og fært örlítið til austurs og segir sagan að Oddur hafi verið í húsinu meðan á því stóð.

Á þessum nýja stað var húsið fram í júní 1991 og var þá flutt austur að Ljósavatni og notað sem sumarbústaður í um aldarfjórðung. Þegar húsinu var breytt í sumarbústað fylgdi því heilmikið umrót og svo var farið að skoða allt dótið á háaloftinu. Kom þá ýmislegt í ljós, þar á meðal áðurnefnd skjöl frá Jakobi V. Havsteen og einnig skjöl frá Bifreiðastöð Akureyrar.

Og kemur þá loksins aftur að skjalinu en fyrst er rétt að fram komi að þegar jarðir biskupsstólsins á Hólum voru seldar 1802 keypti Jakob Havsteen (1774-1829) kaupmaður á Hofsósi Drangey. Jakob á Hofsósi var faðir Jóhanns G. Havsteen (1804-1884) kaupmanns, sem aftur var faðir Jakobs V. Havsteen (1844-1920), etatsráðs og kaupmanns á Akureyri.

Tilefnið skjalsins var að ekkillinn Jóhann G. Havsteen lést í janúar 1884 og í framhaldi var dánarbúinu skipt. Við skiptin kom Drangey í hlut Jakobs V. Havsteen eða eins og segir í skjalinu (ögn lagað):

Vér undirskrifaðir einustu og fullmyndugir erfingjar foreldra vorra kaupmanns J.G. Havsteen dáinn 31. jan þ.á. og Sophiu Jakobinu Havsteen dáinnar 1. ágúst 1881 lýsum því hér með yfir, að vér við samerfingjaskipti komum okkur saman um að eignin Drangey í Hofshreppi í Skagafjarðarsýslu, að dýrleika 9.9 … [hundruð], tilheyrandi búi nefndar foreldra vorra, skyldi vera eign undirskrifaðs erfingja vicekonsuls Jakobs V. Havsteens fyrir tilsett verð 1500 Krónur, og áskilum vér því hinir erfingjarnir honum fullan eignarrétt yfir þessari eyju með öllum þeim réttindum og hlunnindum, sem henni fylgja og fylgt hafa.

Oddeyri og Akureyri 20. maí 1884

Petrea Havsteen  Maren Havsteen J Havsteen
Nielsine Jensen
(fædd Havsteen)
JVHavsteen Þorgrímur Johnsen
vegna konu minnar
Sophiu Havsteen

 

Til þess að hnýta lausa enda þá seldi Jakob Valdimar Skagafjarðarsýslu eyjuna árið eftir.

Þess má líka geta að húsið, sem einu sinni var bifreiðastöð, síðan verslun og svo sumarhús við Ljósavatn var flutt aftur til Akureyrar fyrir nokkrum árum og stóð þar án hlutverks í u.þ.b. ár. Núna er búið að flytja það austur í Vaðlaheiði.

Húsið sem kemur við sögu í greininni. Á efri myndinni sem „Bifreiðastöð Akureyrar“ við hlið Landsbankahússins sem þarna er í byggingu, á þeim neðri þegar húsið hafði lokið því hlutverki að vera verslun „Odds í Höfn“ og var flutt austur að Ljósavatni.