Fara í efni
Fréttir

Fagráð hefur þungar áhyggjur af SAk

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri hefur miklar áhyggjur af framtíð stofnunarinnar náist ekki að laga fjárhagsstöðu þess. Ráðið telur að auka þurfi fjármagn til sjúkrahússins til þess að viðhalda þjónustu og þekkingu sem fyrir er og tryggja nauðsynlega framþróun starfseminnar. þetta kemur fram í yfirlýsingu sem ráðið sendi frá sér í dag.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Vegna umræðu um fjárhagsstöðu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) telur fagráð sjúkrahússins sig knúið til þess að senda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Fagráð lýsir yfir þungum áhyggjum af framtíð Sjúkrahússins á Akureyri náist ekki að laga fjárhagsstöðu þess. Fagráð er þverfaglegt ráð sem skipað er fulltrúum ólíkra fagstétta innan sjúkrahússins. Fagráðið telur að auka þurfi fjármagn til sjúkrahússins til þess að viðhalda þjónustu og þekkingu sem fyrir er og tryggja nauðsynlega framþróun starfseminnar.

Sjúkrahúsið á Akureyri þjónustar stórt svæði á Norður- og Austurlandi. Íbúarnir treysta á öruggt aðgengi að þeirri fjölþættu þjónustu sem sjúkrahúsið veitir. Stækkandi ferðaþjónusta reiðir sig á aðgang að þjónustu SAk. Sjúkrahúsið er alþjóðlega gæðavottað og býr í dag yfir mannauði og þekkingu sem þarf að hlúa að, erfitt væri að vinna upp tap á mannauði væru einingar í þjónustu og starfsemi skertar. Sjúkrahúsið á Akureyri er varasjúkrahús Landspítala og þarf því ávallt að vera vel í stakk búið til þess að taka við sjúklingum þegar neyðarástand skapast, eins og sýndi sig í Covid faraldrinum.

Fagráð bendir á þann sparnað sem það er fyrir þjóðfélagið að fólk geti sótt sem mesta heilbrigðisþjónustu í heimabyggð eða nálægar byggðir. Enginn sparnaður er í því að flytja þjónustu sem nú er veitt á SAk yfir á Landspítalann. Af því hljótast óþægindi fyrir sjúklinga og aðstandur auk þess sem kostnaðurinn færist aðeins til milli eininga. Það er ekki í samræmi við heilbrigðisstefnu stjórnvalda.

Landsmenn allir þurfa á þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri að halda.

26. október 2022
Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri