Fara í efni
Menning

Eyrarrokk haldið í sjötta sinn um helgina

Þeir Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson, Helgi Gunnlaugsson og Sumarliði Helgason standa að Eyrarrokki og eru þarna fyrir réttu ári að taka við sérstakri viðurkenningu frá norðlenska ráðherranum Loga Má Einarssyni fyrir framlag sitt til menningar á Norðurlandi. Logi reimaði síðan á sig dansskóna þetta sama kvöld og kom fram með hljómsveitinni Skriðjöklum, þar sem hann hefur gegnt stöðu dansara undanfarna áratugi.

Tónlistarhátíðin Eyrarrokk verður haldin á Verkstæðinu á Akureyri í kvöld og annað kvöld, 2. og 3. október. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin og áhuginn á henni er slíkur að allir miðar seldust upp samdægurs þegar miðasala hófst þann 1. maí.

Eyrarrokk hefur á fáum árum fest sig í sessi sem einstakur viðburður í tónlistarlífi Akureyrar. Tónleikarnir spanna tvö kvöld og á sviðið stíga tíu íslenskar hljómsveitir og tónlistarfólk, fimm hvort kvöld.

Fram koma:

  • Dr. Spock
  • Sniglabandið
  • Kolrassa Krókríðandi
  • Dr. Gunni
  • Strákurinn Fákurinn
  • Volcanova
  • Elín Helena
  • Shape
  • Drykkir Innbyrðis
  • Innvortis

Heiðar Ingi Svansson verður kynnir hátíðarinnar.

Að hátíðinni standa sem fyrr Rögnvaldur Rögnvaldsson, Sumarliði Helgason og Helgi Gunnlaugsson. Eins og fyrr segir er löngu uppselt á hátíðina og það þýðir ekkert að hringja í þá félaga og spyrja um miða! En áhugasömum meðal miðalausra er bent á að fylgjast með Facebook-síðu hátíðarinnar, því þar koma gjarnan upplýsingar um fólk sem kemst ekki á viðburðinn og vill selja miðana sína.