ESB viðræður eða ekki? Kosning hafin
Laugardaginn 29. ágúst fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst hjá sýslumönnum í gær, þann 27. júlí. Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra á eftirtöldum stöðum:
-
Akureyri, Strandgötu 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorg),
virka daga kl. 10.00 - 15.00. -
Húsavík, Útgarði 1,
mánudaga til fimmtudaga kl. 9.00 - 15.00 en föstudaga kl. 9.00 - 14.00. -
Siglufjörður, Gránugötu 6,
mánudaga til fimmtudaga kl. 9.00 - 15.00 en föstudaga kl. 9.00 - 14.00. -
Þórshöfn, Langanesvegi 2,
mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00 - 14.00 frá 10. ágúst. -
Dalvík, Ráðhúsinu,
miðvikudaga kl. 10:00 - 12:00.
Lokað verður frídag verslunarmanna 3. ágúst 2026. Lengri opnunartími og fleiri kjörstaðir verða auglýstir nánar síðar. Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum við kosninguna. Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á vef landskjörstjórnar.