Enn er hitað upp fyrir Mannfólkið breytist í slím

Aðrir upphitunartónleikar af þremur fyrir menningarhátíðina Mannfólkið breytist í slím verða á morgun, fimmtudaginn 19. júní kl. 21.00. Tónleikarnir fara fram á Akureyri Backpackers þar sem fram koma Drinni & The Dangerous Thoughts, Oscar Leone og DJ Mamalón. Hátíðin sjálf fer fram 17. - 19. júlí á Akureyri, en allt um hana má lesa á heimasíðu hátíðarinnar.
Drinni & The Dangerous Thoughts er hugarfóstur Andra Kristinssonar sem hefur verið iðinn við tónlistarsköpun og tónleikahald undanfarin ár, segir í fréttatilkynningu frá MBS. Síðustu útgáfur Drinna eru breiðskífan “Hávær ljóð” sem kom út 2022 og smáskífan “Nihilism Manifest - Best að vera farinn” sem kom út síðla árs 2023. Lengst af bjó Drinni á Akureyri en gerir nú út frá Ghent í Belgíu.
Oscar Leone er hliðarsjálf Péturs Óskars sem er ekki síður reynslumikill tónlistarmaður en hann hefur sent frá sér efni með reglulegu millibili síðustu ár, til að mynda “Train of Love” og “Hræddir litlir strákar” árið 2024. Auk þess að vera afkastamikill við tónlistarsköpun hefur Oscar Leone einnig leikið í sjónvarpsþáttum og bíómyndum.
Fjarri meginstraumnum
Hefð hefur skapast fyrir röð upphitunartónleika í aðdraganda menningarhátíðarinnar Mannfólkið breytist í slím til að vekja athygli á verkefninu og koma hreyfingu á tónlistarsenu Akureyrar og þá sérstaklega það mengi sem syndir fjarri meginstraumum. Það er listakollektífið og útgáfufélagið MBS á Akureyri sem stendur að Mannfólkið breytist í slím en hátíðin hefur verið haldin allt frá árinu 2018 með sérstaka áherslu á listafólk úr nærumhverfinu þar sem frumleiki og fjölbreytni atriða hefur orðið aðalsmerki verkefnisins.
Röð atriða á upphitunartónleikunum 19. júní er:
- 21:00 - Oscar Leone
- 21:40 - Drinni & The Dangerous Thoughts
- 22:30 - DJ Mamalón