„Enginn bær á landinu á meiri gimstein ...“
„Glerárdalur er auðugur af slíkum töfrum og bíður allra, sem þeirra vilja njóta, og ekki sízt þeirra, sem næst honum búa. Það er Akureyringa að nema þennan dal og njóta hans. Enginn bær á landinu á meiri gimstein að tröllslegri náttúru, víðáttumiklu útsýni, fjallatign og heimkynni vetraríþrótta.“
Þetta segir Trausti Einarsson jarðvísindamaður, sem þá var kennari við Menntaskólann á Akureyri, í 3. árgangi Ferða, blaðs Ferðafélags Akureyrar árið 1942.
Í tilefni 90 ára afmælis Ferðafélags Akureyrar í apríl birtir akureyri.net pistla annan hvern laugardag til vors, þar sem eitt og annað úr sögu félagsins verður rifjað upp.
Hjalti Jóhannesson fjallar í fyrsta pistlinum, sem birtist í dag, um Glerárdal og birtir grein Trausta frá 1942 í heild. „Trausti var virkur í ferðafélaginu meðan hann vann og starfaði á Akureyri og átti merkilegan vísindamannsferil ... Ótrúlega margt af því sem Trausti skrifaði um Glerárdal, sem er í bæjarlandi Akureyrar og í hjarta Tröllaskagans, á vel við enn þann dag í dag.“
Pistill dagsins: Glerárdalur