Fara í efni
Menning

Elsta hús bæjarins mun hýsa gamlar bækur

Elsta hús Akureyrar mun senn fyllast af gömlum bókum. Mynd: akureyri.is.

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að ganga til samninga við fornbókabúðina Svartar bækur um leigu á Laxdalshúsi til fjögurra ára. Undanfarin ár hefur veitingastaðurinn Majó verið þar til húsa, ásamt vinnustofu.

Auk tilboðs fornbókaverslunarinnar bárust tilboð frá Saga Travel og Serenu Pedrana í leigu á húsinu og eftir umræður á fundinum fól bæjarráð Þórgný Dýrfjörð, forstöðumanni atvinnu- og menningarmála, að ganga til samninga við Svartar bækur. Veitingastaðurinn Majó hefur verið í Laxdalshúsi frá árinu 2021 en undanfarið hefur verið unnið að flutningi hans í menningarhúsið Hof.

Laxdalshús stendur við Hafnarstræti 11, byggt árið 1795, og er elsta hús bæjarins. Það er 134 fm að stærð og friðað og í leiguskilmálum er tekið fram að fyrirhuguð starfsemi þurfi að taka mið af því. Það er því vel við hæfi að gamlar bækur fái húsaskjól í þessu aldna húsi.

  • Ítarleg umfjöllun Arnórs Blika Hallmundssonar um Laxdalshús í tilefni af 230 afmæli hússins árið 2025:

Hús dagsins: Laxdalshús, Hafnarstræti 11

  • akureyri.net hefur fjallað skemmtilega um þá Ren Gates og Stu Gates sem eiga bókaverslunina:

Fornbókasalar í Fróða leita að húsnæði

Fornbókasalar flytja úr Gilinu í Strandgötu