Fréttir
Eldur kviknaði í bíl, enginn slasaðist
01.02.2026 kl. 22:30
Myndir: Skapti Hallgrímsson
Fólksbifreið stórskemmdist á Akureyri í kvöld eftir að eldur kviknaði í vélarrúmi hennar. Tveir voru í bílnum og sluppu ómeiddir út.
Bílnum var ekið suður Hörgárbraut og ökumaður stöðvaði fáeinum metrum áður en komið var að brúnni yfir Glerá, við mót Hörgárbrautar, Glerárgötu, Tryggvabrautar og Borgarbrautar.
Slökkvistöðin er nokkur hundruð metra frá staðnum og lögreglustöðin einnig þannig að viðbragðsfólk var fljótt á staðinn. Eldur skíðlogaði þegar slökkviliðsmenn mættu en þeir voru tiltölulega fljótir að slökkva. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn til öryggis og þrír lögreglubílar voru á svæðinu; þessum hluta þjóðvegar 1 var vitaskuld lokað um tíma vegna atviksins.
