Fara í efni
Fréttir

Eldri borgarar minna á sig fyrir kosningar

Um 120 félagsmenn sóttu aðalfund EBAK í Hofi.

Á aðalfundi Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK), þann 17. mars sl. voru samþykktar tvær ályktanir um baráttu- og kjaramál eldri borgara. Meðal annars er skorað á þau framboð sem bjóða fram lista í bæjarstjórnarkosningunum í vor að hafa málefni eldri borgara á stefnuskrá sinni.

Meðal fjölmargra málefna eldri borgara sem aðalfundurinn vill koma á framfæri við þau sem vilja komast í bæjarstjórn er að eldri borgarar fái frístundastyrk, líkt og börnum yngri en 18 stendur til boða. Fjárhagur eldri borgara eigi ekki að koma í veg fyrir ýmiss konar afþreyingu til að styrkja sig og efla. Þá vilja eldri borgarar hærri afslátt af fasteignaskatti, til samræmis við það sem gerist hjá öðrum sveitarfélögum.

Brynt að stækka félagsaðstöðuna

Einnig sé mikilvægt að ávallt verði til lóðir í bænum til að bygginga á íbúðum fyrir eldra fólk, ekki síst fyrir óhagnaðardrifin leigufélög eða húsnæðissamvinnufélög. Þá sé brýnt að stækka félagsaðstöðu EBAK þannig að hægt sé að sinna félagsstarfinu sómasamlega. Markmiðið sé að félagið eignist sitt eigið félagsheimili. Félagar í EBAK eru nú ríflega 3.000 talsins.

Í ályktun EBAK um kjaramál er skorað á þingmenn allra flokka að samþykkja frumvarp á alþingi um að grunnlífeyrir eldri borgara hækki samkvæmt launavísitölu, því stöðva þurfi þá kjaragliðnun sem hafi viðgengist undanfarin ár. Einnig beindi fundurinn þeirri áskorun til ríkisstjórnarinnar að þau sem lægstu tekjurnar hafi fái sérstakar uppbætur á lífeyri mánaðarlega. Um 10.000 eldri borgarar séu með heildartekjur undir lágmarkstaxta Starfsgreinasambands Íslands, sem er í dag liðlega 476.000 krónur fyrir skatt. Skorað er á Landssamband eldri borgara að fylgja kjaramálum félagsmanna sinni eftir af festu og einurð.