Einfaldir hlutir geta skipt gríðarlegu máli
„Við höfum ekki fullkomna stjórn á því hvernig við eldumst. Lífið er einfaldlega þannig að við förum í gegnum alls konar tímabil þar sem líkaminn breytist, við höfum misjafna orku, meiðumst, veikjumst eða þurfum að takast á við nýjar áskoranir.“
Þannig hefst heilsupistill Guðrúnar Arngrímsdóttur sem akureyri.net birtir í dag. Pistillinn ber yfirskriftina Byggðu líkama fyrir lífið og er bæði fróðlegur og umhugsunarverður að vanda.
Guðrún segir þó að fólk hafi oft mun meiri áhrif á það hvernig því líður og hvernig líkaminn þjóni fólki til lengri tíma en það geri sér grein fyrir. „Við erum gjörn á að leita að einni lausn sem á að breyta öllu. Nýju æfingaprógrammi, sex vikna átaki eða flýtileið að betri heilsu og langlífi. Á meðan gleymum við oft grunninum,“ segir Guðrún.
Pistill Guðrúnar: Byggðu líkama fyrir lífið