Fara í efni
Íþróttir

Einar og Matea best hjá KA og KA/Þór

Haraldur Bolli Heimisson, Skarphéðinn Ívar Einarsson, Einar Rafn Eiðsson, Matea Lonac, Anna Þyrí Halldórsdóttir og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir. Mynd af vef KA.

Einar Rafn Eiðsson var valinn besti leikmaður handboltaliðs KA í vetur og Matea Lonac best hjá KA/Þór. Þetta var tilkynnt í lokahófi handknattleiksdeildar KA og KA/Þórs sem fram fór á miðvikudaginn í KA-heimilinu.

Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:

  • Bestur hjá KA: Einar Rafn Eiðsson
  • Efnilegastur hjá KA: Skarphéðinn Ívar Einarsson
  • Besti liðsfélagi hjá KA: Haraldur Bolli Heimisson
  • Best hjá KA/Þór: Matea Lonac
  • Efnilegust hjá KA/Þór: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir
  • Besti liðsfélagi hjá KA/Þór: Anna Þyrí Halldórsdóttir

Fimm leikmenn voru heiðraðir fyrir að spila 100 leiki fyrir KA eða KA/Þór; Patrekur Stefánsson, Arnór Ísak Haddsson og Daði Jónsson fyrir KA og Aðalheiður Jóhannsdóttir og Matea Lonac með KA/Þór.

Þá var þeim Rut Arnfjörð og Ólafi Gústafssyni þakkað sérstaklega fyrir framlag þeirra til félaganna á undanförnum árum en þau eru á förum frá Akureyri. Sömu sögu má segja um Telmu Ósk Þórhallsdóttur og Skarphéðin Ívar Einarsson.

Arna Valgerður Erlingsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson, fráfarandi þjálfarar KA/Þórs, fengu blómvönd fyrir sín störf og sömuleiðis Guðlaugur Arnarsson en hann lætur nú af störfum sem aðstoðarþjálfari KA.