Ein með öllu er hátíð allrar fjölskyldunnar
Aðstandendur fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina reikna með að mikill fjöldi fólks leggi leið sína til bæjarins dagana sem hátíðin stendur yfir. Þeir leggja áherslu á orðið fjölskylduhátíð og vilja minna á „mikilvægt hlutverk foreldra og forsjáraðila,“ eins og það er orðað í tilkynningu sem send var út í gær.
„Foreldraábyrgð nær til 18 ára aldurs og reynslan sýnir að virk þátttaka foreldra er einn sterkasti verndandi þátturinn í lífi ungmenna,“ segir í tilkynningunni, þar sem greint er frá því að „með samstilltu átaki foreldra, samfélagsins, viðbragðsaðila og skipuleggjenda getum við stuðlað að öruggri, jákvæðri og eftirminnilegri verslunarmannahelgi fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.“
Tilkynning er svohljóðandi í heild:
Sumarið er fljótt að líða. Það styttist óðfluga í verslunarmannahelgina og fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri er ein fjölmennasta hátíð landsins. Gera má ráð fyrir auknum fjölda gesta í bænum, þar á meðal fjölmörgum ungmennum sem leggja leið sína til Akureyrar yfir helgina.

Frá Sparitónleikunum á Akureyrarvelli um verslunarmannahelgina á síðasta ári. Myndir: Hilmar Friðjónsson
Í undirbúningi hátíðarinnar hafa fulltrúar Akureyrarbæjar, lögreglu, forvarna- og velferðarþjónustu, barnaverndar, grunn- og framhaldsskóla ásamt skipuleggjenda hátíðarinnar komið saman til að samræma aðgerðir og tryggja örugga og jákvæða upplifun fyrir alla gesti.
Ein með öllu er fyrst og fremst fjölskylduhátíð og því viljum við minna á mikilvægt hlutverk foreldra og forsjáraðila. Foreldraábyrgð nær til 18 ára aldurs og reynslan sýnir að virk þátttaka foreldra er einn sterkasti verndandi þátturinn í lífi ungmenna.
Reynslan sýnir að áhrifaríkustu verndandi þættirnir eru að ...
- ... foreldrar viti hvar ungmenni þeirra eru og með hverjum
- ... foreldrar setji skýr mörk og fylgi þeim eftir...
- ...foreldrar hafi virkt samtal og samráð sín á milli
Við hvetjum ykkur foreldra sérstaklega til að ...
- ... ræða fyrirfram við ungmennið um áform helgarinnar
- ... samræma viðmið við aðra foreldra
- ... leyfa ekki eftirlitslaus samkvæmi
- ... fylgjast með ferðum og tryggja örugga heimkomu
- ... vera til staðar og aðgengileg ef á þarf að halda

Frá barnaskemmtun Einnar með öllu í Kjarnaskógi í síðasta ári. Mynd: Hilmar Friðjónsson
Akureyrarbær mun, í samstarfi við viðbragðsaðila og skipuleggjendur hátíðarinnar, tryggja sýnilega nærveru á vettvangi alla helgina, meðal annars með flakkandi félagsmiðstöð og aukinni viðveru fagaðila og viðbragðsaðila. Verði barn undir lögaldri fundið ölvað er það skylda fagaðila að tilkynna slíkt til barnaverndar.
Með samstilltu átaki foreldra, samfélagsins, viðbragðsaðila og skipuleggjenda getum við stuðlað að öruggri, jákvæðri og eftirminnilegri verslunarmannahelgi fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.
Svo mörgvoru þau orð.