Egill Logi fær milljón úr minningarsjóði Svavars

Akureyringurinn Egill Logi Jónasson, sem gengur undir listamannsnafninu Drengurinn Fengurinn, hlýtur einnar milljón króna styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Eysteinssonar í ár, til að vinna að verkefninu Dreamboy Syndicate. Egill Logi var á dögunum valinn bæjarlistamaður Akureyrar í ár.
„Egill er mjög afkastamikill listamaður sem leggur bæði stund á myndlist og tónlist og hefur gefið út fjölmargar breiðskífur. Innan verkefnisins er einnig prentverk, tónlistarútgáfa, tónleikahald, hljóðver, norrænt samstarf og fleira,“ segir í tilkynningu frá minningarsjóði Svavars Péturs – sem þekktur var sem tónlistarmaðurinn Prins Póló. Fram kemur að Dreamboy Syndicate haldi utan um alla listssköpun Egils Loga.
Á undan sjálfsefanum
Egill lýsir sköpun sinni þannig: „Mér finnst mikilvægt að láta verkin tala og því er ég mikið að vinna með það að láta vaða. Það geri ég til að vera á undan sjálfsefanum. Það sem einkennir mína list og tónlist er kannski að ég er ekkert endilega að vinna verk þangað til að ég tel að þau séu fullkomin. Ég hef reynt það en þá endar maður oftast á því að festast í óöryggi og skilar svo kannski engu af sér. Ég held að það sé vaxandi löngun í mannleg og hrá verk á tímum gervigreindar og fullkomnunar. Tölvur eru fullkomnar, fólk er gallað og það er fallegt.“
Listamaðurinn og stjórn minningarsjóðsins. Frá vinstri: Benedikt Hermann Hermannsson, Berglind Häsler, formaður, Elsa Þórey Eysteinsdóttir, Egill Logi Jónasson, Björn Kristjánsson og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir.
Í tilkynningunni segir jafnframt:
Stjórn Minningarsjóðs Svavars Péturs Eysteinssonar styður því með stolti við verkefnið en hátt í fjörtíu umsóknir bárust í sjóðinn í ár. Í rökstuðningi stjórnar segir: Verkefnið er frumkvöðlastarf sem er keyrt áfram af miklum drifkrafti, hugsjón og skýrri sýn. Verkefnið er jafnframt vel afmarkað og með skýra áætlun.
Minningarsjóður Svavars Péturs var stofnaður árið 2023 með það að leiðarljósi að halda minningu einstaks listamanns á lofti, en Svavar Pétur lést úr krabbameini 29. september árið 2022. Hann var einstaklega krafmikill, vinnusamur, fjölhæfur og framtakssamur tónlistarmaður, myndlistarmaður, hönnuður, matvælaframleiðandi, frumkvöðull og bóndi sem veitti fjölda fólks innblástur með verkum sínum og vinnu, hugmyndauðgi, kjarki og þori.
Markmið sjóðsins er að styðja við listamenn og frumkvöðla sem vinna með einhverjum hætti í sama anda og Svavar Pétur. Stjórn sjóðsins hefur unnið ötullega að fjármögnun hans með fjölmörgum verkefnum.
Í samstarfi við 66°Norður var gerð flíspeysuútgáfa af Haustpeysu Prinsins. Peysan var hönnuð af Svavari Pétri í samstarfi við 66°Norður, og var ágóði af sölu tileinkaður sjóðnum. Einnig stóð stjórn sjóðsins fyrir Hátíð hirðarinnar: Afmælistónleikum Prins Póló, þar sem fjölmargir tónlistarmenn komu fram og gáfu vinnu sína fyrir málstaðinn. Þá var myndaður Hlaupahópur Hirðarinnar þar sem galvaskir hlauparar hlupu og söfnuðu áheitum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Og að sjálfsögðu verður aftur hlaupið fyrir Minningarsjóðinn í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar.
Aðstandendur Minningarsjóðsins eru afar þakklátir öllum þeim sem hafa lagt fram vinnu í þágu sjóðsins, lagt til fé og/eða tekið þátt í öllum þessum verkefnum.
Þeim sem vilja leggja sjóðnum lið með samstarfi, vinnuframlagi eða einhverju allt öðru er bent á að hafa samband, havari@havari.is. Þau sem vilja styðja við sjóðinn með fjárframlagi er bent á að millifæra á reikning: 0133-26-9936 kt. 650423-2830.