Fara í efni
Menning

„Ég hef alltaf kallað mig Akureyring“

Erling Róbert Eydal, hornleikari. Mynd af heimasíðu North Atlantic Brass.

Erling Róbert Eydal hefur aldrei búið á Akureyri en segir bæinn engu að síður eiga stóran sess í hjarta sínu. Tónlistin hefur fylgt honum frá barnsaldri, enda á hann ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana, og í dag starfar hann sem hornleikari í Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins. Erling er einnig meðlimur í málmblásarakvintettinum North Atlantic Brass, sem heldur tónleika í Akureyrarkirkju kl. 20 nk. föstudagskvöld 27. nóvember. Erling segir tilhlökkunina mikla, ekki síst að fá að koma fram í bænum sem hann hefur alltaf litið á sem sinn heimabæ.

Tónleikarnir í Akureyrarkirkju eru hluti af tónleikaferð North Atlantic Brass um Ísland. Kvintettinn leikur á Ísafirði fimmtudaginn 26. nóvember, í Akureyrarkirkju föstudaginn 27. nóvember og í Hörpu í Reykjavík 1. desember. Efnisskráin verður fjölbreytt og spannar íslensk og norræn þjóðlög í útsetningum fyrir brasskvintett, klassíska tónlist, djass og jólalög.

„Ég hef reyndar alltaf kallað mig Akureyring þó svo að ég hafi aldrei búið þar,“ segir Erling við akureyri.net. Foreldrar hans eru bæði fædd og uppalin á Akureyri og stór hluti fjölskyldunnar býr þar. Erling var mikið á Akureyri sem barn og segir fjölskylduna hafa eytt öllum fríum sínum í bænum. Tengslin séu því sterk þótt hann hafi alist upp annars staðar.

Málmblásarakvintettinn North Atlantic Brass, sem leikur í Akureyrarkirkju á föstudagskvöldið. Mynd af vefsíðu hljómsveitarinnar.

Tengingin við Akureyri og tónlistina er ekki síst í gegnum afa hans, tónlistarmanninn Ingimar Eydal, en 90 ár voru liðin frá fæðingu hans í október, eins og akureyri.net sagði frá í máli og myndum. Móðir Erlings, Ásdís Eydal, er yngsta dóttir Ingimars og Ástu Sigurðardóttur, en faðir hans er Einar Björn Erlingsson.

Afi sem hann þekkti aldrei – en hefur alltaf verið nærri

Ingimar lést árið 1993, fimm árum áður en Erling fæddist. Þeir hittust því aldrei, en Erling segir afa sinn engu að síður hafa verið stóran þátt í lífi sínu frá upphafi. „Hann var stór karakter og mikill fjölskyldumaður og fólkið mitt talaði mikið um hann. Tónlistin lifir enn og til eru ótal sögur og frásagnir um hann. Það gerist ótrúlega oft að fólk stoppi mann til að segja einhverjar skemmtilegar sögur af honum.“

Erling segir líka dýrmætt að kynnast afa sínum í gegnum gamlar upptökur og myndbönd. Víða má finna viðtöl, tónlistarflutning og ýmislegt annað úr lífi hans „og meira að segja gamlar Skoda auglýsingar á YouTube,“ segir hann.

Það eru ekki allir svo heppnir að fá það tækifæri að geta horft á afa sinn í allskonar viðtölum og spila frábæra músík.

Hann bætir við að ýmislegt sé líkt með þeim tveimur. Erling hafi erft hæðina, skóstærðina og ýmis svipbrigði afa síns. Þá hafi þeir báðir verið málglaðir! „Hann talaði mjög mikið eins og ég geri og blanda saman alls konar tungumálum þegar þarf,“ segir Erling.

Þó að þeir langfeðgar hafi aldrei hist sér Erling fyrir sér að tónlistin hefði örugglega sameinað þá, ef svo hefði verið. „Ég veit að ef við hefðum verið samtíða þá hefðum við talað stanslaust um tónlist. Hann með gamlar jazzplötur og ég með brasstónlist, og svo hefði hann sagt mér allt um KEA,“ segir hann kankvíslega.

Vildi læra á þrjú horn

Tónlistin var stór hluti af uppeldi Erlings og hann segir að hún hafi alltaf verið á heimilinu, hvort sem það var í útvarpinu „eða við mamma að garga í míkrafóninn í Singstar,“ eins og hann orðar það. Ásdís móðir hans lagði sjálf stund á tónlistarnám og fannst mikilvægt að börnin lærðu á hljóðfæri samhliða grunnskólanámi.

Erling hafði þó snemma ákveðið hvaða hljóðfæri hann vildi læra á. „Ég byrjaði að læra á horn þegar ég var sex ára gamall. Ég hlustaði mikið á Pétur og úlfinn á leikskólaaldri og var alltaf harðákveðinn að hornið væri hljóðfærið mitt.“ Reyndar voru áformin enn metnaðarfyllri í upphafi. „Ég ætlaði að læra á þrjú horn þar sem úlfurinn í sögunni var táknaður með þremur hornum, en eitt var látið duga.“

Erling segir sig hafa verið heppinn með kennara í gegnum árin. Fyrsti hornkennarinn hans var Sturlaugur Jón Björnsson, síðar kenndi Lilja Valdimarsdóttir honum og þegar hann hóf nám í Menntaskólanum í tónlist tók Joseph Ognibene við kennslunni. Joseph hafi reynst honum sérstaklega góður kennari og vinur sem hann leiti enn til. „Það er svo mikil samvinna og nánd í tónlistarnámi að kennararnir skipta miklu máli,“ segir hann.

Vinátta sem varð að alþjóðlegum kvintett

Tengsl Erlings við North Atlantic Brass ná langt aftur því hann og trompetleikarinn Gunnar Kristinn Óskarsson kynntust þegar þeir voru strákar í Skólahljómsveit Austurbæjar, sem Vilborg heitin Jónsdóttir stjórnaði. Hún hafi oft myndað litla samspilshópa innan sveitarinnar og þar hafi áhuginn á brassmúsík kviknað.

Þeir spiluðu síðar saman í kvintett og áttu sér sameiginlegan draum um að stofna eigin málmblásarakvintett. „Við sátum oft saman fram á nótt að hlusta á brassmúsík á YouTube, svo sem Mnozil Brass og Canadian Brass, bara svona eins og unglingar gera gjarnan,“ segir Erling og meinar það auðvitað hæfilega alvarlega!

Þriðji Íslendingurinn er meðlimur í North Atlantic Brass því auk Erlings og Gunnars Kristins, sem leikur á trompet, er Gunnar Helgason á básúnu. Danski trompetleikarinn Frederik Pehrsson og norski túbuleikarinn August Schieldrop fullkomna kvintettinn.

North Atlantic Brass var stofnað árið 2019. Mynd af vefsíðu hljómsveitarinnar.

North Atlantic Brass hefur aðsetur í Kaupmannahöfn og hefur komið fram á Norðurlöndunum og víðar. Hópurinn hlaut meðal annars fyrstu verðlaun í Ryan Anthony Memorial-keppninni í Los Angeles árið 2024.

Erling segir þá félaga hafa lengi dreymt um að koma til Íslands og leika á tónleikum bæði á Ísafirði og Akureyri. Gunnar Kristinn er ættaður frá Ísafirði en tenging Erlings við Akureyri liggur auðvitað í fjölskyldunni. „Þannig að eftir að við stofnuðum North Atlantic Brass hefur okkur dreymt um að koma til Íslands og spila á Ísafirði og á Akureyri.“

Fékk fasta stöðu í elleftu tilraun

Tónlistarferill Erlings nær víða um Norðurlönd og Evrópu. Hann hóf bachelornám í Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn árið 2019. Samhliða náminu leitaði hann víða eftir reynslu, sótti einkatíma hjá kennurum í Noregi og lék meðal annars með Copenhagen Philharmonic og Sinfóníuhljómsveitinni í Óðinsvéum.

Eftir útskrift hóf hann meistaranám við Sibelius-tónlistarakademíuna í Helsinki. Þar kynntist hann núverandi kærustu sinni, sem var í skiptinámi frá Hannover í Þýskalandi. Þegar hún lauk dvöl sinni ákvað Erling að sækja um skiptinám í Hannover og sameina þannig tónlistarnám og samveru með henni.

Rétt áður en hann flutti til Þýskalands tók hann þátt í prufuspili fyrir stöðu hornleikara í Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins - og fékk starfið. Það var þó ekki fyrsta prufuspilið sem hann hafði tekið þátt í. „Í mínu fagi er mikil samkeppni um stöður og partur af náminu er einmitt að sækja um stöður og taka þátt í inntökuferli. Svo er þetta starfsumhverfi mjög alþjóðlegt og fólkið sem sækir um stöður kemur víða úr heiminum sem eykur enn á samkeppnina. Maður hefur ekki annan valkost en að sækja um og vona það besta.“

Þetta var ellefta prufuspilið sem Erling tók þátt í. Og eftir að hafa starfað með hljómsveitinni í heilt ár á reynslutíma fékk hann fasta ráðningu. „Ég tel mig enn mjög heppinn að hafa fengið þessa stöðu í Kaupmannahöfn,“ segir hann. Þótt hann sé nú búsettur í Kaupmannahöfn er hann enn að ljúka meistaranáminu í Helsinki og hefur því þurft að flakka á milli landa vegna náms og starfa. Hann hefur einnig spilað af og til með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

„Nú sér brátt fyrir endann á náminu, ég stefni á að klára fyrir jól og við höfum komið okkur vel fyrir hér í Kaupmannahöfn og stefnum á að vera hér um ókomna tíð,“ segir Erling Róbert Eydal.


  • Miðasala á tónleikana í Akureyrarirkju er á stubb.is