Fara í efni
Fréttir

Efni viðtalstíma skráð rafrænt fyrirfram

Viðtalstímar bæjarfulltrúa verða á Amtsbókasafninu þriðja þriðjudag í hverjum mánuði kl. 16-17:30. Innfellda myndin er skjáskot af upptöku frá bæjarstjórnarfundi í gær.

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gær með 11 samhljóða atkvæðum að endurvekja viðtalstíma bæjarfulltrúa, en jafnframt tilkynnti Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri að hún hygðist einnig bjóða upp á sérstaka viðtalstíma bæjarstjóra einu sinni í mánuði. Bæjarbúar geta nú þegar bókað viðtöl við bæjarstjórann.

Boðið var upp á viðtalstíma bæjarfulltrúa um árabil, en þetta form samskipta milli bæjarbúa og bæjarfulltrúa hefur ekki verið í boði síðan 2020. Stærsta breytingin nú þegar viðtalstímarnir verða endurvaktir er að bæjarbúar skrá sig rafrænt fyrirfram með nafni og efni viðtalsins þannig að viðkomandi bæjarfulltrúar geti kynnt sér málið sérstaklega áður en að viðtalstímanum kemur. 

Gunnar Már Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar, upplýsti við kynningu málsins að reiknað sé með að fyrsti viðtalstími bæjarfulltrúa verði þriðjudaginn 22. september. Sú nýbreytni er einnig tekin upp nú að viðtalstímarnir verða á Amtsbókasafninu.

Viðtalstímar verða þriðja þriðjudag í hverjum mánuði frá kl. 16 til 17:30. Tveir bæjarfulltrúar verða til viðtals hverju sinni, einn frá meirihluta og einn frá minnihluta.

Breytt form á skráningu og úrvinnslu

„Þetta er ánægjulegt mál sem við erum að ræða hér í dag, að við séum að fara að framkvæma það og hefja á ný viðtalstíma bæjarfulltrúa,“ sagði Berglind Ósk á bæjarstjórnarfundinum í gær. „Ég hlakka til að taka þátt í þessu verkefni og eiga milliliðalaust samtal við fólk, sem vissulega er hluti af okkar störfum og við gerum á margvíslegan hátt, úti um allan bæ og í alls konar formi. Þetta er bara einn formlegur vettvangur sem verður ótrúlega gaman að taka þátt í og sjá hvernig þróast áfram.“

Berglind Ósk upplýsti jafnframt að tekið yrði í notkun rafrænt bókunarkerfi fyrir fundina þannig að bæjarbúar skrái nafn og tilgang fundarins. Bæjarfulltrúar geti þá líka mætt undirbúnir á fundina. „Ég held að það skipti máli fyrir gagnsæi, traust og að mál séu betur upplýst,“ sagði Berglind Ósk á fundinum.

Úrvinnsla og eftirfylgni mikilvæg

Úrvinnsla eftir fundina verður einnig frábrugðin því sem áður var, með innleiðingu tæknilausna. Berglind Ósk nefndi ábendingakerfi bæjarins og að það yrði notað þannig að bæjarfulltrúar sem eru til viðtals hverju sinni skrái inn málið inn í ábendingagátt þannig að það fái málsnúmer og fari rétta leið inn í kerfið. 

Sindri S. Kristjánsson, S-lista, fagnaði því að viðtalstímarnir yrðu teknir upp aftur, en brýndi jafnframt bæjarstjórn til að halda vel og þétt utan um samtölin, úrvinnslu og eftirvinnslu mála.

Hlynur Jóhannsson, M-lista, nefndi úrvinnsluleiðina eftir viðtalstímana og sagði hana hafa verið í góðum farvegi þegar viðtalstímarnir voru í boði áður. Bæjarfulltrúar hafi skrifað niður allt um viðkomandi mál, það síðan tekið fyrir í bæjarráði sem fjallaði um það sem fram kom og vísaði áfram í tilheyrandi nefndir. Hlynur sagði ekki þörf á að breyta þeirri góðu leið.

Skráning hafin í viðtalstíma bæjarstjóra

Í umræðum um málið tilkynnti Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri um viðtalstíma bæjarstjóra og geta bæjarbúar nú þegar bókað tíma. Gert er ráð fyrir að bjóða upp á viðtalstíma bæjarstjóra einu sinni í mánuði á miðvikudagsmorgnum og verður fyrsti viðtalstíminn kl. 9:00-9:30 miðvikudaginn 16. september. 

Á vef Akureyrarbæjar, undir tímabókanir, er að finna hnappinn viðtalstími bæjarstjóra þar sem bæjarbúar geta skráð sig og málefnið sem viðkomandi vill ræða við bæjarstjórann. Með því að smella á myndina hér að neðan er farið beint inn á bókunarsíðuna.