DIMMA sendir frá sér annað nýtt lag
Rokksveitin DIMMA hefur sent frá sér nýtt lag, Þegar Dómklukkan Slær, annað lag sveitarinnar eftir nýlegar breytingar á liðskipan. Sveitin fylgir útgáfunni eftir með þrennum tónleikum þar sem nýju lögin verða leikin í fyrsta sinn á sviði.
Í spjalli við akureyri.net segir Ivan Mendez, söngvari DIMMU, að æfingar fyrir tónleikaferðina séu nú í fullum gangi. Fyrstu tónleikarnir verða á Selfossi, síðan í IÐNÓ í Reykjavík 30. október og loks á Græna hattinum á Akureyri laugardaginn 7. nóvember.
Ivan segir mikla spilagleði og orku í hljómsveitinni. „Það er mikill andi í bandinu þessa dagana, stutt er í tónleika og spennan liggur í loftinu.“ Hann er jafnframt ánægður með nýja lagið og segir orkuna í sveitinni skila sér í tónlistinni. „Þótt ég segi sjálfur frá, þá er ég afskaplega ánægður með útkomuna af þessu nýja lagi og ég tel að bæði spennan og andinn skili sér vel í gegnum hljóðbylgjurnar,“ segir hann.
Á tónleikunum verða nýju lögin flutt í fyrsta sinn fyrir áhorfendur, en jafnframt verður farið í gegnum úrval af þekktustu lögum DIMMU af eldri plötum. Sveitin lofar kraftmikilli tónleikaupplifun. „Æfingar eru nú í fullum gangi og hefur allt gengið eins og í sögu, mikil spilagleði og orka.“
DIMMA skipa nú Ívan Mendez söngvari, Skúli Gíslason trommuleikari, Silli Geirdal bassaleikari og Ingó Geirdal gítarleikari.
Miðasala fyrir tónleikana á Akureyri er á vefsíðu Græna hattsins.
- Nýja lagið á Spotify: