Diddú og Örn með söngskemmtun í Hofi
Diddú og Örn Árnason verða með söngskemmtun á léttu nótunum í Hömrum, minni salnum í menningarhúsinu Hofi, á laugardaginn kl. 17. Þar ætla þau að flytja bæði sjómannalög og önnur lög og spjalla við gesti á léttu nótunum inn á milli. Jónas Þórir píanóleikari fullkomnar svo tríóið. Örn lofar notalegri og góðri stund og jafnvel einhverju óvæntu.
Hann segir í spjalli við akureyri.net að þau hafi fengið þá dillu í höfuðið að leggja leið sína norður og gera sjómannadeginum hátt undir höfði. „Eða reyndar er þetta nokkurs konar forleikur að sjómannadeginum, af því þetta er á laugardaginn,“ segir Örn. Hann segir að þau Diddú hafi gert mikið af því að koma saman fram. „Við erum búin að vinna lengi saman og náum vel saman raddlega séð,“ segir Örn.
Aðspurður um dagskrána sem þau ætla að bjóða upp á segir Örn að fyrir hlé verði þau með fullt af sjómannalögum og alls kyns lagasyrpur sem tengjast hafi og sjómennsku. „Eftir hlé ætlum við aðeins að sprella og róa á almennari mið með nokkurs konar söngskemmtun og spjöllum þá eitthvað á léttum nótum milli laga,“ segir Örn. „Þetta verður ekkert ofboðslega alvarleg dagskrá en þetta verður notaleg og góð stund,“ bætir hann við, áður en hann trúir blaðamanni fyrir því að mögulega reyni þau sig við frægan dúett úr tónlistarsögunni.
Verður Kattadúettinn tekinn?
„Við Diddú pössum vel saman í dúetta, tökum til dæmis Hvítu máva, og svo ætlum við kannski að reyna okkur við Kattadúettinn,“ segir Örn leyndardómsfullur. Blaðamaður veðrast allur upp, enda er flutningur þeirra Guðrúnar Á. Símonar og Þuríðar Pálsdóttur á umræddum dúett í sjónvarpinu með skýrustu og eftirminnilegustu stundum barnsáranna. Stórkostleg tónsmíð og ekki annað hægt en falla í stafi þegar hlýtt er á umræddan dúett. Og svo býður dúettinn auðvitað upp á leikræn tilþrif í flutningi. „Jájá, það er bara Rossini, maður,“ segir Örn glettnislega þegar blaðamaður segir að þau ætli greinilega ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.
Hann bætir við að þau láti ýmislegt fleira fljóta með og Bogi róni komi jafnvel í heimsókn líka. „Eða... má nokkuð segja róni í dag?“ veltir Örn fyrir sér hugsi. „Verður maður ekki að hafa þetta eitthvað fínt... Bogi ölvunarfræðingur, er það ekki fínt?“ segir Örn og skellir upp úr – og við verðum ásáttir um að það sé bara einmitt hæfilega fínt „starfsheiti“ fyrir þann vinalega náunga.
„En fyrst og fremst verður þetta bara notaleg og góð stund og einnig verður hægt verður að kaupa veitingar til að njóta á meðan,“ segir Örn að lokum.
