Fara í efni
Íþróttir

Brynjar Hólm fer ekki í bann – með gegn KA

Brynjar Hólm Grétarsson í skotstöðu gegn ÍR fyrr í vetur. Það eru mikil gleðitíðindi fyrir Þórsara að hann verði með gegn KA á fimmtudaginn. Mynd: Ármann Hinrik

Brynjar Hólm Grétarsson leikmaður Þórs getur spilað leikinn mikilvæga gegn KA á fimmtudaginn, í lokaumferð Olísdeildarinnar í handbolta. Hann var rekinn af velli gegn Haukum á dögunum en niðurstaða aganefndar HSÍ, sem fundaði í dag, var að ekki skyldi aðhafast frekar í málinu. Það er Þórsurum mikill léttur að Brynjar verði með enda algjör lykilmaður.

Úrskurður aganefndar er svohljóðandi: 

Brynjar Hólm Grétarsson leikmaður Þórs hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Þórs og Hauka í Olís deild karla þann 04.03.2026. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Ögurstund í Höllinni

Svo skemmtilega vill til að leikurinn á fimmtudaginn – heimaleikur Þórs í Íþróttahöllinni – skiptir bæði Þór og KA gríðarlegu máli. Með sigri kæmist Þór í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn, svo fremi HK tapi fyrir Haukum. KA er í 5. sæti sem stendur en gæti náð 4. sæti með sigri að því gefnu að ÍBV tapi á heimavelli fyrir Val.