Brjóst til styrktar góðu málefni
Listamaðurinn Sigurður Mar Halldórsson hefur opnað ljósmyndasýningu í Þúfu 46 í tilefni af Bleikum október. Myndirnar, sem eru allar af brjóstum, eiga sér persónulega sögu og er sýningunni ætlað að vekja athygli á brjóstakrabbameini og styðja við þá sem glíma við sjúkdóminn.
Sigurður Mar er einn þeirra listamanna sem eiga aðild að Þúfu 46 sem er sameiginlegt vinnu- og sýningarrými níu listamanna, staðsett að Gránufélagsgötu 46. Ljósmyndirnar, sem allar eru svarthvítar, tók Sigurður eftir að eiginkona hans greindist með brjóstakrabbamein haustið 2006 og gekkst undir erfiða meðferð.
Í kjölfarið langaði Sigurð að leggja sitt af mörkum til baráttunnar gegn krabbameini og tækið sem hann hafði til þess var myndavélin. Hjúkrunarfræðingar, sem hann kynntist í tengslum við veikindi eiginkonu sinnar, aðstoðuðu hann við að finna konur til að taka þátt í verkefninu en konurnar sem sátu fyrir á myndunum höfðu allar einhver tengsl við brjóstakrabbamein og vildu því gjarnan leggja sitt af mörkum.
Upphaflega var hugmyndin að selja myndirnar og láta ágóðann renna til rannsókna eða stuðnings við konur í krabbameinsmeðferð. Aðeins ein mynd seldist en hinar hafa legið í kassa síðan. Nú, tuttugu árum síðar, fannst Sigurði kominn tími til að dusta rykið af myndunum og gefa þeim loksins tækifæri til að gera það sem þeim var ætlað. Ekkert fast verð er á myndunum heldur greiða áhugasamir kaupendur einfaldlega það verð sem þeir vilja en allur ágóði af sölu myndanna fer rennur óskipt til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
- Framlög má leggja inn á reikning félagsins, 0302-22-002474, kennitala 520281-0109, og merkja innleggið „Þúfa“.