Menning
Britpop nostalgía og hundar á Listasafninu
09.06.2025 kl. 11:00

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Listasýningar
- Opnun: Flæði - samsýning Grétu Berg og Gló Ingu. Deiglan, opnun sunnudaginn 15. júní kl. 14. Sýningin verður svo opin daglega 14-17 til 22. júní.
- Samsýning norðlenskra listamanna - Mitt rými. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 14. september.
- KIMAREK: Innsetning í tilefni fjörutíu ára starfsferils Margrétar Jónsdóttur. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 28. september.
- Kristján Eldjárn sýnir í Mjólkurbúðinni Akureyri - Sýningin stendur til 17. júní.
- Ný heildarsýning í Sigurhæðum og verk Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns.
- Línumál - myndlistasýning Vikars Mars í Hofi. Hamragil í Hofi. Sýningin stendur til 23. ágúst.
- TÍMI - RÝMI - EFNI – Sýning Þóru Sigurðardóttur í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- SAMLÍFI – Sýning Heimis Hlöðverssonar í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- Safnasafnið – Fjöldi nýrra sýninga.
Tónleikar
- Hreimur, Magni og Gunni Óla á Græna. Föstudagskvöldið 13. júní kl. 21.
- Britpop. Græni hatturinn, laugardagskvöldið 14. júní kl. 21. Slagarar frá gullöld Britpop-senunnar.
- Killer Queen. Græni hatturinn. Bestu lög Queen á Hattinum. Mánudagskvöldið 16. júní kl. 21.
Græni hatturinn er einn af menningarvitum bæjarins, og næsta helgi verður fjölbreytt og skemmtileg á Græna! Uppistand, sveitaballaveisla, Killer Queen og nostalgían í algleymingi á Britpop tónleikum á laugardag. Myndir: graenihatturinn.is
Aðrir viðburðir
- „Innrammað”- ljósmyndasýning í Lystigarðinum á Akureyri. ÁLFkonur opna sýninguna við LYST, mánudaginn 9. júní kl. 15.00.
- Hundakvöld í Listasafninu. Hundar velkomnir á Listasafnið ásamt eigendum sínum. Fimmtudagskvöldið 12. júní kl. 19-22.
- Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði? - Uppistand á Græna hattinum. Fimmtudagskvöldið 12. júní kl. 21.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.