Fréttir
Breyttur akstur SVA vegna lokunar í Merkigili
18.08.2026 kl. 18:00
Hér má sjá akstursleiðir strætisvagna SVA nr. 3 og 5 á meðan lokun norðurakreinar Merkigils milli Kiðagils og Vesturgils varir. Bláa línan sýnir akstur vagns nr. 3 og sú rauða sýnir leið vagns nr. 5.
Tvær leiðir Strætisvagna Akureyrar, leið 3 og 5, munu sleppa því að aka um Giljahverfi eftir kl. 8.30 á morgun, miðvikudaginn 19. ágúst.
Norðurakrein Merkigils verður lokuð frá Kiðagili að Vesturgili frá kl. 8:30 á morgun og því þarf að breyta akstursleið þeirra vagna sem aka réttsælis um Giljahverfið. Ekki kemur fram í tilkynningu frá SVA hve lengi þessi lokun varir.

Norðurakrein Merkigils, frá Kiðagili að Vesturgili, verður lokuð frá kl. 8:30 að morgni miðvikudagsins 19. ágúst. Skjáskot af map.is/akureyri.