Breska setuliðið lék 25 sinnum við Þór 1940
SÖFNIN OKKAR – 129
Frá Minjasafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Heimsstyrjöldin – Afþreying breskra hermanna á Akureyri
Það rann fljótlega upp fyrir bresku hermönnunum þegar þeir komu sér fyrir á Akureyri og nágrenni í maí 1940 að lítið var um afþreyingu á svæðinu, að minnsta kosti ekkert í líkingu við það sem þeir áttu við að venjast í heimalandinu. Þeim leiddist raunar mikið og ekki hjálpaði til þegar hugurinn leitaði heim til ástvina og þeirrar óvissu sem ríkti í stríðinu. Þó var til staðar eitt bíó á Akureyri (Nýja bíó) og þar að auki voru sýndar kvikmyndir í einstaka herbúðum. Þeir höfðu einnig mikinn áhuga á íþróttum og spiluðu gjarnan knattspyrnu sín á milli til dægrastyttingar, en einnig var keppt við heimamenn.

Hermennirnir bjuggu í herbúðum víða á Akureyri og Eyjafirði og mynduðu gjarnan knattspyrnulið í hverjum kampi. Strax sumarið 1940 spilaði breska setuliðið 25 leiki við Þór. Báru Þórsarar yfirleitt sigur úr býtum, en þeir unnu 19 af leikjunum, töpuðu þremur og gerðu þrjú jafntefli. Eitt liðið skaraði þó fram úr öðrum hjá setuliðinu, en það var lið hermanna í Krossanesi sem þótti afar harðskeytt. Fyrir því tapaði Þór í tvígang, 8. og 10. ágúst. Í leik sem fór fram 24. ágúst 1940 segir í fundargerðum Þórs: „Krossanesliðið… mjög harður leikur. Sennilega besta liðið af brezku hermönnunum sem Þór hefur leikið við. Jafntefli 1:1.“
Það merkilega við þessa fótboltaleiki í upphafi hernáms er að slíkir leikir fóru ekki fram í Reykjavík fyrr en nokkuð var liðið á hernámið.

Á gamla Þórsvellinum á Oddeyri, um það bil þar sem Linduhúsið reis síðar.





Nokkrir knattspyrnumenn úr breska setuliðinu.
