Bráðum koma blessuð jólin í Jólaglugganum
Gluggasýningin í Hafnarstræti 88 um þessar mundir kallast Bráðum koma blessuð jólin.
Glugginn í Hafnarstræti 88 er hugverk systranna Brynju Harðardóttur Tveiten myndlistarkonu og Áslaugar Harðardóttur Tveiten sem rekur skrautmunasöluna Fröken Blómfríður. „Glugginn tengist líðandi stundu hverju sinni og er tilvalinn áfangastaður í gönguferðum og vettvangsferðum. Hann hefur þann tilgang að lífga upp á umhverfið, hvetja vegfarendur til að staldra við í amstri dagsins og skapa gleði, hlýju og nánd,“ segir í tilkynningu.

„Litið er inn á heimili frá fyrri hluta síðustu aldar. Heimilisfólkið er gengið til náða og töfrar jólanna færast hljóðlega yfir bæinn. Stjörnubjartur himinn lýsir upp umhverfið, glansandi rauð epli bíða í skál, nýsteikt laufabrauð og hangikjötsflís hvíla á diski og sofandi kisur á sæng. Búið er að skreyta m.a. með litríkum músastigum og heimagerðu jólatré.“
Gluggasýningin hófst á fyrsta sunnudegi í aðventu og stendur þar til á þrettándanum, 6. janúar. „Hún er aðgengileg allan sólarhringinn enda notið utan frá séð og hentar jólabörnum á öllum aldri,“ segir í tilkynningu frá systrunum.
