Fara í efni
Fréttir

Blóðbankinn flytur í nýtt húsnæði

Ingólfur Helgason var fyrsti blóðgjafinn á nýjum stað Blóðbankans á Glerártorgi. Hjúkrunarfræðingurinn Hanna er með honum á myndinni Mynd: Blóðbankinn Glerártorgi

Blóðbankinn á Akureyri er kominn í nýtt og betra húsnæði og býður alla velkomna í heimsókn á morgun, mánudag, á opnunarhátíð milli klukkan 12 og 15 til að skoða nýju aðstöðuna. Flutningarnir eru innanhúss á Glerártorgi og hefur Blóðbankinn fært sig úr suðurhluta byggingarinnar þar sem hann var áður á annarri hæð og yfir í norðurhlið verslunarmiðstöðvarinnar. Gengið er inn um dyr sem er á milli verslunarinnar Blush og pílustaðarins Skor og upp á aðra hæð. 

Að sögn Hönnu Vigdísar Jóhannesdóttur, hjúkrunarfræðings hjá Blóðbankanum á Glerártorgi, er nýja rýmið rúmbetra en fyrra húsnæði. Þar eru nú tvö viðtalsherbergi auk aðstöðu fyrir fundi og símtöl við blóðgjafa. Hönnun á húsnæðinu var í höndum Arkís og telst hafa tekist mjög vel.  Áfram  verða fjórir fastir starfsmenn hjá Blóðbankanum eins og verið hefur.