Fara í efni
Fréttir

Bláir sendlar skjótast með mat heim til fólks

Sendar Wolt eru auðþekkjanlir, bláklæddir, hvort sem þeir fara um á bíl eða hjóli.

Akureyringar munu eiga þess kost frá og með næsta miðvikudegi að fá sendan mat heim til sín með hraði frá mörgum veitingastaða bæjarins á vegum fyrirtækisins Wolt.

„Frá og með 20. mars eru bláu sendlarnir tilbúnir að hefja afhendingu vara frá veitingastöðum og verslunum til fólks á Akureyri. Wolt hefur samið við meira en 30 sendla á Akureyri sem sjá um heimsendingarnar. Fyrirtækið býður upp á vettvang sem sameinar staðbundnar verslanir og veitingastaði, sendla og viðskiptavini og gerir þér mögulegt að fá nánast það sem þú vilt sent heim á um 40 mínútum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Wolt var stofnað í Finnlandi árið 2014 en er nú í eigu bandaríska fyrirtækisins Door Dash. Wolt hóf starfsemi á Íslandi í maí á síðasta ári, þegar boðið var upp á þjónustu í höfuðborginni.

Akureyri sjötta bæjarfélagið

„Við erum mjög spennt að geta boðið heimsendingar á Akureyri. Það hefur alltaf verið ætlun okkar að bjóða þjónustu Wolt í höfuðborg Norðurlands og við erum mjög spennt að hefja starfsemi Wolt á yndislegu Akureyri,“ segir Elisabeth Stenersen, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi og í Noregi í tilkynningunni. „Með því að bjóða upp á Wolt heimsendingu geta veitingastaðir og staðbundnar verslanir náð til stærri viðskiptavinahóps. Heimsendingarnar skapa nýja tekjulind fyrir verslanir og styður þannig við hina staðbundnu verslun. Viðskiptavinir kunna að meta þægindin við að geta fengið kvöldmatinn afhentan heim með snöggum hætti á þeim dögum sem þeir hafa ekki tíma til að elda sjálfir, eða ef þeir vilja bara dekra við sig.“

„Heimamenn geta valið á milli rétta frá öllum heimshornum í Verksmiðjunni, fengið mögulega bestu hamborgara Íslands á DJ Grill, pizzur frá Sprettur-Inn, kjöt og sjávarfang frá Greifanum, kebab frá Kurdo kebab og indverskan mat í heimsklassa frá Indian Curry Hut svo eitthvað sé nefnt. Staðbundinn veitingarekstur hefur gengið vel og bendir Wolt á að fyrirtækið hefur náð dekkun veitingastaða á Akureyri sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi.“

Að sögn Stensersen hafa nær allir veitingastaðir á Akureyri skráð sig. „Við erum enn og aftur undrandi yfir þeim frábæru móttökum sem við höfum fengið bæði frá viðskiptavinum og veitingastöðum á Íslandi,“ segir hún. „Markaðurinn hefur stækkað mun hraðar en við bjuggumst við og með tilkomu Akureyrar geta nú um 75 prósent landsmanna fengið Wolt heimsendingu á innan við 40 mínútum. Þó að heimsendingarfyrirtæki eins og okkar hafi áður verið takmarkað við stærri borgir höfum við séð bæði í Noregi og á Íslandi að það er dulin eftirspurn eftir þessari þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins líka. Við erum tilbúin fyrir enn meira á íslenska markaðnum,“ segir Stensersen.

Þetta eru staðirnir sem verða í boði á Akureyri frá og með miðvikudeginum skv. upplýsingum Wolt:

  • Sushi Corner
  • Rub23
  • Bautinn
  • Pizzasmiðjan
  • Strikið
  • Centrum Kitchen & Bar
  • Ísbúðin Akureyri og Boozt barinn (x2)
  • Berlín Akureyri
  • Sykurverk
  • Múlaberg
  • Kurdo Kebab
  • Verksmiðjan
  • Greifinn
  • Ísgerðin
  • Serrano
  • GS búllan
  • Indian Curry House
  • Backpackers
  • Dj Grill

Wolt hóf að bjóða heimsendingu í Reykjavík í byrjun maí 2023 og hefur síðan fært út kvíarnar, til Hafnarfjarðar, Reykjanesbæjar, Selfoss og Hveragerðis.

„Akureyri er sjötta bæjarfélagið á Íslandi, og það fyrsta á Norðurlandi, sem fær hraðsendingarþjónustu Wolt. Á heimsvísu er Wolt til staðar í 27 löndum í Evrópu og Asíu. Síðan 2022 hefur fyrirtækið verið hluti af DoorDash í Kaliforníu.“

Höfuðstöðvar tæknifyrirtækisins Wolt eru í Helsinki „og gerir fyrirtækið viðskiptavinum sínum auðvelt að uppgötva bestu veitingastaðina, verslanir í nærumhverfinu og matvöru sem hægt er að panta og fá senda með hraði til einstaklinga og fyrirtækja. Til að gera þetta mögulegt hefur Wolt þróað tæknilegar lausnir fyrir allt frá flæðistjórnun, verslunarhugbúnað og greiðslulausnum til reksturs matvöruverslana eins og Wolt Market. Wolt var stofnað 2014 og keypt af DoorDash 2022. DoorDash rekur starfsemi í 31 landi og er Wolt með starfsemi í 27 af þeim löndum. Wolt hóf starfsemi á Íslandi í maí 2023.“