Fara í efni
Mannlíf

Bjórsmakk, matur og „alvöru útitónleikar“

Frá tónleikum Unu Torfadóttur á Sumar- og bjórhátíðinni í Lystigarðinnum í fyrrasumar.

Sumar- og bjórhátíð verður haldin í Lystigarðinum á Akureyri í júlí, með sama sniði og undanfarin tvö ár. Það er Reynir Gretarsson vert á LYST sem stendur að hátíðinni sem fyrr.

Hátíðin stendur í þrjá daga, 18. til 20. júlí, en aðaldagurinn í Lystigarðinum er laugardagurinn 19. júlí, þá verður bjórsmakk og matsala yfir daginn og tónleikar um kvöldið. Reynir er í samstarfi við fjölda fyrirtækja og það er einmitt draumur hans að hátíðin stækki og teygi anga sína sem víðast um bæinn. „Forsala armbanda er hafin, þau gilda á hátíðina í Lystigarðinum, bæði yfir daginn og á tónleikana um kvöldið, ásamt því að veita afslætti á fjölda veitingastaða í bænum um helgina. Þá verður hvalaskoðunarfyrirtækið Elding líka með í ár – þar verður 2 fyrir 1 tilboð í hvalaskoðun,“ segir Reynir. 

Frá hátíðinni í Lystigarðinum á síðasta ári.

Hvert armband kostar 15.000 krónur en í forsölu á lyst.is er verðið 12.000 sem Reynir segir mjög hagstætt „því einungis miðaverð á tónleika með stjörnum eins og þeim sem koma fram um kvöldið myndi oftast vera að minnsta kosti svipað. Og ef fólk nýtir sér til dæmis 2 fyrir 1 tilboð í hvalaskoðun  má segja að búið sé að borga upp armbandið!“

Listamennirnir sem koma fram í ár eru Una Torfadóttir, Akureyringurinn Rakel Sigurðardóttir, Bríet og þeir Jói P og Króli. Þetta verða „alvöru útitónleikar,“ segir Reynir. „Una Torfa kom fram á hátíðinni í fyrra og var frábær. Hátíðin þá tókst mjög vel og ég er sannfærður um að þetta verður geggjuð helgi,“ segi hann og bætir við með bros á vör: „Ég er búinn að lofa góðu veðri. Spáin var dálítið tæp í fyrra en það rættist úr og hátíðin var æðisleg.“ 

Matur og drykkur

Fyrirkomulagið í Lystigarðinum verður það sama og áður. Bjórsmakkið verður frá klukkan 13.00 til 18.00 á laugardeginum og fjölbreyttur matur til sölu á sama tíma, að sögn Reynis. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00.

„Brugghúsin verða inni og matarstöðvarnar úti, garðurinn verður í fullum blóma og við reynum að hafa þetta létt og skemmtilegt. Ætlum að skapa skemmtilega „útlandastemningu“ ef svo má segja.“

Fimm matarstöðvar verða í Lystigarðinum, sem Reynir lýsir svo:

  • Austan Vatna – Skagfirskt matarhandverk frá Edu í Austan vatna, grillaðar chorizo pylsur og meðlæti.
  • Adventure chef – Akureyringurinn Viktor Snorrason býður upp á kjúkling szechuan með sticky hrísgrjónum.
  • Majo – Maggi í Majo mætir aftur með Sushiið sitt.
  • LYST – Grillaðar pítsur með Nduja frá Ólífa.
  • Tony Mellado og Jón Ragnar Kristjánsson gera paellu.

Gengið hefur verið frá því að eftirtalin brugghús taki þátt í hátíðinni:

  • Borg í Reykjavík
  • Víking, Akureyri
  • Húsavík öl á Húsavík
  • Vínkeldan á Akureyri
  • The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum
  • Smiðjan í Vík í Mýrdal
  • Grugg og Makk á Snæfellsnesi
  • Dokkan á Ísafirði
  • Bruggsmiðjan Kaldi, Litla-Árskógssandi
  • Mývatn öl í Mývatnssveit
  • Beljandi í Breiðdalsvík
  • Gæðingur í Kópavogi
  • Malbygg í Reykjavík
  • Beljandi á Breiðdalsvík
  • Og Natura í Hafnarfirði
  • Segull 67 á Siglufirði

Tony Mellado og Jón Ragnar Kristjánsson – „Nonni diskó“ – bjóða upp á paellu á hátíðinni.

Góð umgengni lykilatriði

„Þetta byrjaði sem lítil hugmynd hjá mér og Halldóri Darra æskuvini mínum og þáverandi bruggmeistara hjá Borg. Okkur langaði að gera eitthvað nýtt, það var enginn tími til að halda hátíð en við ákváðum að gera það samt!“ segir Reynir við Akureyri.net.

„Eitt brugghús var á staðnum á fyrstu hátíðinni og við grilluðum pítsur. Þetta hefur stækkað ár frá ári og núna taka 16 brugghús þátt.

Reynir leggur áherslu á að góð umgengni hátíðargesta skipti mjög miklu máli.

„Hátíðin er haldin í góðu samstarfi við Lystigarðinn og Akureyrarbæ og til þess að við fáum að halda svona flotta viðburði áfram verður umgengnin auðvitað vera góð. Fólk verður að hafa í huga að við erum í Lystigarðinum; það er eins og halda tónleika á Listasafninu og garðurinn á að vera fínn og flottur á meðan allt er í gangi. Þetta er ekki fyllerí, ekki djamm.“ Reynir segir hátíðina hafa gengið mjög vel öll árin. „Það hefur aldrei komið til vandræða og ég geri ekki ráð fyrir að einhver vandræði verði í ár. Allir verða að hugsa vel um garðinn og við hvetjum fólk til þess að haga sér vel.“

Fólk geri sér ferð til Akureyrar

Reynir hefur ákveðna framtíðarsýn hvað hátíðina varðar. Hann gerir ekki ráð fyrir að hún stækki meira í garðinum, þangað komi fólk eins og hingað til í því skyni að smakka bjór og borða, og njóti síðan tónleika um kvöldið, „en ég sé fyrir mér samstarf við veitingastaði út um allan bæ á föstudegi og sunnudegi. Ég horfi til dæmis á hátíðir eins og Food and Fun og Iceland Airwaves,“ segir Reynir; draumurinn sé að fólk geri sér ferð til Akureyrar á hátíðina, eins og reyndin er með matar- og tónlistarhátíðirnar í Reykjavík sem hann nefndi. „Í ár verður eitthvað um „off venue“ viðburði á föstudeginum, til dæmis má nefna að NORTH by Dill ætlar að hafa bjórpörun með matnum í samstarfi við Malbygg brugghús.“

LYST á Facebook