Fara í efni
Mannlíf

Bjóða í heimsókn í Sælureit í sveit

Stefán Tryggva- og Sigríðarson og Inga Árnadóttir. Myndir með viðtali: Rakel Hinriksdóttir

Norðan við bæinn Leifshús á Svalbarðsströnd er svokallaður „Sælureitur í sveit“ að verða til. Það eru hjónin Inga Árnadóttir og Stefán Tryggva- og Sigríðarson sem eru á bak við verkefnið, en hugsjón um hæglætislífstíl og nánd við náttúruna er grunnurinn að sælureitnum. 

„Í Danmörku og Noregi hef ég tekið eftir og verið hrifin af svokölluðum kolonihaver,“ segir Inga um uppruna verkefnisins. „Það eru svona hverfi af litlum húsum eða kofum sem eru rétt fyrir utan þéttbýli eða kannski í skógi vöxnu afmörkuðu svæði innan þéttbýlis. Þarna hefur fólk ekki fasta búsetu, en kemur gjarnan í fríium og oft er það með einhverja ræktun til dæmis. Þetta snýst um að komast í eitthvað frjálsræði og náttúru.“ 

Fyrst og fremst er það ósk okkar að fólk vilji leigja sér hús til þess að næra sálina, komast út í náttúruna og hægja á

Inga hefur lengi hrifist af hugmyndinni um þessi litlu hverfi, en hún segist þó ekki endilega hafa séð fyrir sér þá að hún myndi sjálf útbúa svona svæði. Stefán og Inga byggðu upp hótel á Þórisstöðum sem þau svo seldu fyrir fjórum árum. Þá skapaðist rými til þess að sinna hugðarefnunum og meðal annars fór hugmyndin um íslenskan 'kolonihave' að banka á dyrnar.

Húsin næstum því tilbúin

„Við keyptum 8 lítil braggalaga hús sem eru framleidd í Litháen að norskri fyrirmynd og koma til okkar í einingum sem aðeins þarf að setja saman,“ segir Stefán. „Síðastliðið sumar höfum við svo sett húsin upp eitt af öðru, og allt er að verða klárt. Það er komið rafmagn í öll húsin, heitt og kalt vatn og klósett.“ 

„Þetta eru hús til þess að rækta hug og hönd, gera ekki neitt eða bara vera,“ segir Stefán. „Fyrst og fremst er það ósk okkar að fólk vilji leigja sér hús til þess að næra sálina, komast út í náttúruna og hægja á.“ „Það er hægt að gista í húsunum náttúrulega, en það er líka hægt að skjótast bara einn eftirmiðdag eða hvað fólki hentar best. Þetta er samt ekki sumarbústaður, ekki í þessum hefðbundna skilningi,“ bætir Inga við. 

 

Húsin eru staðsett í skógi vöxnum lundi. Mynd: RH

Kyrrð og ró í hávegum höfð

Húsin eru 15 fermetrar með 6 fermetra palli fyrir framan. Inni er svefnpláss fyrir tvo, pínulítill eldhúskrókur, klósett og verönd. „Það er ekki hægt að koma með mikið af dóti með sér,“ bendir Stefán á. Húsin eru öll staðsett í litlum skógarlundi rétt norðan við bæinn og Listasmiðjuna í Leifshúsum. Nettir stígar liggja á milli húsa, en ekki er hægt að koma á ökutæki inn í lundinn. Það er með vilja gert, til þess að passa upp á kyrrð og ró. 

„Það verður í boði að hafa 10-20 fermetra skika til þess að rækta grænmeti á staðnum fyrir áhugasama leigjendur húsanna. Við ætlum líka að skaffa svona uppbyggða kassa fyrir ræktun, ef fólk óskar þess,“ segir Inga.

„Fyrirkomulagið verður þannig, að fólk getur leigt hús í ár í senn,“ segir Stefán. „Okkur langar að bjóða fólki til þess að koma í heimsókn næstu helgi að skoða og spyrja út í fyrirkomulagið ef áhugi er fyrir hendi. Fyrst og fremst langar okkur núna að kanna áhugann, en við stefnum á að leigja húsin út frá og með næsta vori.“

Fjölbreytt ræktun hugs og handar

Hjónin reka einnig Listasmiðju í Leifshúsum, en þar gefst listafólki kostur á að fá að dvelja á staðnum endurgjaldslaust og vinna að sköpun sinni. Með sælureitnum leggja staðarhaldarar enn frekari grunn fyrir fólk til þess að rækta hug og hönd.