Bjartsýnishátíðin Sólarpönk í fyrsta sinn
Sólarpönk bjartsýnishátíð verður haldin í fyrsta sinn á Íslandi, þegar sólarpönkararnir bjóða til skapandi samveru, listasmiðja og viðburða í Listagilinu um komandi helgi. Þuríður Helga Kristjánsdóttir skipuleggur hátíðina ásamt Diönu Sus, og hún segir að sólarpönk sé í rauninni vilji til þess að sjá fyrir sér betri heim, og lifa samkvæmt þeirri sýn. Blaðamaður akureyri.net hitti Þuríði og forvitnaðist um Sólarpönk.
„Sólarpönk hugmyndafræðin sprettur upp sem andsvar við heimsendaspám og þeirri orðræðu að mannkynið og jörðin sé óhjákvæmilega á leið í hrun og teiknar í staðinn upp framtíðarsýn þar sem við lifum í sátt við náttúruna og hvert annað. Sólarpönk er valdeflandi og beinir athyglinni að því að manneskjan er skapandi, lífsglöð og ábyrg samfélagsvera sem vill láta gott af sér leiða,“ segir Þuríður Helga.
„Í stað heimssýnar sem byggir á skorti og samkeppni, ótta og reiði, hvetur Sólarpönk okkur til að setja fram og ímynda okkur bjartari heimsmynd þar sem samvinna, gnægð og fegurð eru í forgrunni. Framtíðarsýn sem við viljum geta speglað okkur og börnin okkar“
Solarpunk er alþjóðleg hreyfing
Hugtakið Solarpunk kom fyrst fram á sjónarsviðið í Brasilíu árið 2008, þegar nafnlausa greinin 'Steampunk to Solarpunk' var birt. Yfirlýst markmið hreyfingarinnar var svo gefið út árið 2019, en hún hljóðar svona: Hreyfing hugmyndafræðilegs skáldskapar, listar, tísku og aktivisma, sem leitast við að svara spurningum um það, hvernig sjálfbært samfélag lítur út, og hvernig komumst við þangað?

Fjölmargir sólarpönkarar taka þátt í hátíðinni og bjóða til skapandi samveru á breiðu sviði. Hér er samsett mynd með nokkrum úr hópnum. Skipuleggjendur hátíðarinnar eru lengst til vinstri, Þuríður (efri mynd) og Diana. Hér er hlekkur á Facebook síðu hátíðarinnar, en myndirnar eru fengnar þaðan.
Fjölskrúðug dagskrá
Dagskrá hátíðarinnar er mjög fjölbreytt, en hún hefst opnunarviðburði í Deiglunni kl. 19.30 á morgun, föstudaginn 13. mars. Á laugardag verður súpa í boði, málþing um Sólarpönk, listasmiðjur, útivera, vinnustofur og tónleikar um kvöldið með Strákinum Fákinum í Kaktus. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis.
Á sunnudaginn 15. mars hefst dagskráin kl 10 og stendur til um 14. Dagskráin hefst á hljóðri samveru og endar á erindi frá Amnesty International um tilfinningar og aktívisma, inn á milli verður hægt að dansa, spjalla og njóta ávaxta Sólarpönks.
- HÉR má skoða alla dagskrána
„Markmið hátíðarinnar er að kynna Sólarpönk hugmyndafræðina, efla bjartsýni, gleði og von í samfélaginu í gegnum samtal, sköpun og samveru ásamt því að vera mótvægi við neikvæða umræðu, vaxandi kvíða og einmanaleika. Þegar neikvæðni, ógn og tortryggni fylla miðlana má segja að bjartsýni sé orðin það sjaldgæf að hún sé pönk!“ segir Þuríður Helga að lokum.
Hátíðin er styrkt af Akureyrarbæ, Gilfélaginu, KEA, Skrauta, SUNN og Veglyndi.