Fara í efni
Menning

Birkir Blær með tónleika á Græna hattinum

Birkir Blær eftir að hann sigraði í sænsku Idol söngkeppninni 10. desember á síðasta ári. Ljósmynd: Guðmundur Svansson

Tónlistarmaðurinn Birkir Blær heldur tónleika á Græna hattinum á fimmtudaginn, 29. desember, kl. 21.00. Birkir býr í Stokkhólmi þar sem hann starfar sem tónlistarmaður, vinnur að útgáfu plötu og kemur einnig fram við ýmis tækifæri.

Birkir sigraði í sænsku Idol söngkeppninni undir lok síðasta árs og vakti gríðarlega athygli, eins og Akureyri.net greindi ítarlega frá á sínum tíma.

Þekktir lagahöfundar vilja vinna með Birki

Hann hefur verið á samningi hjá Universal útgáfunni eftir sigurinn í Idol, hefur komið fram með afar þekktum tónlistarmönnum í Svíþjóð „og lagahöfundar sem hafa unnið fyrir marga af þekkstu tónlistarmönnum heimsins hafa lýst áhuga á að vinna með honum,“ segir í tilkynningu.

„Birkir fann fyrir mjög miklum stuðningi að heiman á meðan Idol-keppninni stóð og hann hlakkar mikið til að koma heim og þakka fyrir stuðninginn með því að spila á Græna hattinum.

Birkir hefur oftast komið einn fram hér á Íslandi en núna setti hann saman hljómsveit og verður efnisskráin afar fjölbreytt. Flutt verður mjög kraftmikil soul, rokk og blústónlist, m.a. sem Birkir flutti í Idol-keppninni, en einnig ballöður og R&B tónlist.

Eldri tónlist Birkis verður flutt í nýjum útgáfum og svo verða frumflutt lög af væntanlegri plötu hans.“

Hljómsveit Birkis Blæs skipa: Emil Þorri Emilsson trommuleikari, Tómas Leó Halldórsson sem leikur á bassa og hljómborðsleikarinn Eyþór Ingi Jónsson

Húsið verður opnað kl. 20.00

Forsala miða er á grænihatturinn.is

https://www.instagram.com/birkir.blaer/

https://www.facebook.com/birkirblaerodinsson

https://www.facebook.com/events/857591352339679