Fara í efni
Fréttir

Betlarar reyndust svikahrappar

Lögreglan á Akureyri hafði í gærkvöldi afskipti af tveimur karlmönnum sem betluðu peninga undir því yfirskini að þeir væru að safna fé til styrktar heyrndardaufum. Í ljós kom að þarna voru svikahrappar á ferð. Lögreglan greinir frá þessu á Facebook síðu embættisins.

„Í gærkvöldi höfðum við afskipti af tveimur karlmönnum af erlendum uppruna, sem voru við verslanir á Akureyri, að betla peninga af fólki undir því yfirskini að þeir væru að safna fé til styrktar heyrnardaufum. Þóttist annar mannanna tala táknmál en kunnáttuleysi hans á því sviði var afhjúpað þegar hann vatt sér að konu sem kann táknmál,“ segir í færslu lögreglunnar.

 „Við nánari skoðun á þessum mönnum kom í ljós að þeir voru ekki að safna fé fyrir nein samtök og höfðu því vissulega engin leyfi til slíks. Þeir voru því að svíkja fé af fólki en virðast þó ekki hafa haft mikið upp úr krafsinu að þessu sinni. Þeir eru í löglegri dvöl hér á landi en við erum nú að skoða hvort þeir kunni að hafa tengsl við fleiri við sömu iðju og þá hvort þetta er stundað með skipulögðum hætti.“

Lögreglan vill gjarnan fá að vita af því ef fólk verður vart við vafasamar peningasafnanir af þessu tagi. Þá er hægt að senda tilkynningu á netfangið nordurland.eystra@logreglan.is og tilgreina þar stað og stund, lýsingu á aðilum o.s.frv. Ef þið eruð viss um að verið sé að betla fé undir fölsku yfirskini er hægt að hringja í 112 og óska eftir lögreglu á staðinn.“

Síðan segir: „Við skulum samt hafa í huga að félagasamtök geta fengið leyfi til opinberra safnana, sölu á happdrættismiðum og þessháttar en eðlilegt er að þeir sem það gera séu merktir félaginu og geti framvísað leyfisbréfi fyrir söfnuninni.“