Fara í efni
Mannlíf

BeThere útvegar miða á 80.000 viðburði

Aron Ingi Hlynsson: „Þegar maður er búinn að skipuleggja ferð, kaupa flug og bóka gistingu vill maður bara geta hlakkað til leiksins, án þess að hafa áhyggjur af þessu líka.“ Mynd: Skapti Hallgrímsson

Akureyringarnir Aron Ingi Hlynsson og Gunnar Björn Gunnarsson hafa opnað miðasöluvefinn BeThere, þar sem hægt er að finna miða á um 80.000 viðburði víða um heim. Þar má meðal annars finna fótboltaleiki, leikhús, tónleika og Formúlu 1, auk annarra íþróttaviðburða. Kaupferlið er einfalt, miðarnir berast rafrænt og ef eitthvað kemur upp á er íslensk þjónusta til staðar.

Hugmyndin kviknaði út frá eigin reynslu Arons af ferðum á fótboltaleiki og tónleika erlendis. Hann hefur keypt miða á ýmsum erlendum sölusíðum þar sem upplifun, afhending miða og þjónusta geta verið mismunandi eftir söluaðilum. Stundum gengur allt eins og í sögu en viðskiptahættirnir geta líka oft verið vafasamir. „Ég hef meira að segja þurft að hitta ókunnugan einstakling á ákveðnum stað fyrir leik til að fá lánaðan síma með miðanum á. Svo þarf maður að finna sama einstakling eftir leikinn og skila símanum,“ segir Aron.

Þegar búið er að skipuleggja ferð, kaupa flug og bóka gistingu vill hann geta hlakkað til viðburðarins án þess að hafa áhyggjur af miðunum. Þess vegna hafi hann viljað búa til þjónustu þar sem fólk fær miðana rafrænt og getur leitað til þjónustuaðila hér heima ef spurningar vakna. „Þegar maður er búinn að skipuleggja ferð, kaupa flug og bóka gistingu vill maður bara geta hlakkað til leiksins, án þess að hafa áhyggjur af þessu líka,“ segir hann.


Tveir Akureyringar á bak við verkefnið

Aron Ingi og Gunnar Björn stofnuðu BeThere. Aron sér um birgja, sölu og viðskiptavini en Gunnar hannaði og smíðaði vefinn og sér um tæknimálin og markaðssetningu.

Það tók sex til átta mánuði að koma verkefninu í loftið. Í upphafi reyndist erfitt að ná sambandi við erlenda samstarfsaðila og fá aðgang að miðaframboði þeirra. „Ég var í raun bara einhver óþekktur gæi frá Íslandi að biðja um aðgang að miðaframboðinu þeirra. Það fóru margir tölvupóstar út og töluvert færri komu til baka,“ segir Aron. Hann hélt þó áfram að leita eftir samstarfi. Eftir að samtöl og netfundir komust á skrið tóku við samningar og tæknileg vinna við að setja miðasöluna upp.

Þegar BeThere fór fyrst í loftið voru rúmlega þúsund viðburðir skráðir á vefnum. Aron vildi auka úrvalið og fór í frekari vinnu við að auka við framboðið. Nú má finna um 80.000 viðburði á vefnum sem hægt er að kaupa miða á.

Miðinn getur fundist eftir að ferðin er bókuð

En BeThere er ekki aðeins ætlað þeim sem ákveða fyrst að fara á leik eða tónleika og skipuleggja ferðina í kringum það. Aron sér fyrir sér að vefurinn geti ekki síður nýst fólki sem er þegar búið að bóka utanlandsferð.

Beina flugið frá Akureyri til London eða Manchester opnar til dæmis áhugaverða möguleika fyrir fólk á Norðurlandi sem vill sameina ferðalag og viðburð. Viðkomandi geta skoðað hvaða viðburðir eru í boði á meðan dvalið er í borginni. Þar gætu leynst tónleikar með uppáhaldshljómsveitinni, fótboltaleikur eða annar viðburður sem ferðalangurinn vissi ekki að væri á dagskrá. „Þú þarft því ekki alltaf að skipuleggja ferð í kringum viðburð. Þú getur líka fundið viðburð sem gerir ferðina sem þú ert þegar búinn að bóka enn skemmtilegri,“ segir Aron. Og það er nánast sama hvaða áfangastaður er skoðaður, oftast er hægt að finna einhvern áhugaverðan viðburð á viðkomandi stað.

Kaupferlið á BeThere er einfalt. Viðskiptavinir velja viðburð, skoða hvaða sætasvæði eru í boði og sjá verðið. Fyrir hópa með fimm manns eða færri er yfirleitt hægt að ganga frá kaupum beint á síðunni, en stærri hópar geta sent fyrirspurn og fengið svar innan sólarhrings. Greitt er með greiðslukorti og miðarnir berast rafrænt.

Nokkur dæmi um miðaverð

Til að gefa hugmynd um verðlagningu skoðaði blaðamaður dæmi af handahófi á vefnum þann 2. nóvember. Öll verðin hér að neðan eru lokaverð með gjöldum, en miðaverð getur breyst eftir framboði.

Rétt eins og á aðra viðburði er hægt að velja um margs konar miðaverðflokka og útfærslur á leik Manchester United og Bayern Munchen í janúar. Hér má sjá hluta af úrvalinu sem er í boði á þann leik. Skjáskot af vef BeThere.

Verðin eru því mismunandi eftir viðburðum og því hvaða miðar eru í boði. Aron segir markmiðið að bjóða sanngjarnt og samkeppnishæft verð, en telur að þjónustan snúist ekki síður um heildarupplifunina. Fólk eigi að geta fundið viðburð, gengið frá kaupum á einfaldan hátt og vitað hvert það geti leitað ef spurningar vakna. Að hans mati skiptir máli að geta haft samband við þjónustuaðila hér heima, hvort sem þörf er á aðstoð við kaup eða þegar komið er að því að nota miðann.

Aron hvetur fólk til að skoða BeThere áður en það heldur næst utan. Þar geti leynst viðburður sem ekki var upphaflega á dagskrá ferðarinnar en endi á því að verða eitt af eftirminnilegustu augnablikunum. „Það gæti verið viðburður í borginni sem þú vissir ekkert af og verður svo hápunktur ferðarinnar,“ segir Aron.