Besta deildin: Þór/KA tekur á móti Stjörnunni
Leikjadagskráin í Bestu deild kvenna í knattspyrnu er þétt fyrstu vikurnar. Í dag er komið að þriðja leik Þórs/KA á tíu dögum og öðrum heimaleiknum þegar lið Stjörnunnar úr Garðabæ kemur norður.
Þór/KA er með eitt stig í næstneðsta sæti deildarinnar. Liðið gerði jafntefli við FH í fyrstu umferðinni, en tapaði fyrir Grindavík/Njarðvík á útivelli í annarri umferð þar sem gestgjafarnir skoruðu í viðbótartíma leiksins og má segja að þær hafi stolið sigrinum eftir að fjölmörg færi Þórs/KA fóru í súginn. Stjarnan er í 4. sætinu með þrjú stig, tapaði fyrir Víkingi í fyrstu umferðinni, en vann Val í annarri umferð.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 17
Þór/KA - Stjarnan
Þór/KA vann fyrri viðureign liðanna í Bestu deildinni í fyrra 1-0 á heimavelli í maí, en Stjarnan vann seinni leikinn 4-1 í byrjun september. Þess má geta að í liði Stjörnunnar eru tvær sem koma úr röðum Þórs/KA, þær Andrea Mist Pálsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir.
- - -
Uppfært kl. 8:00
Alhvít jörð er á Akureyri og tíu sentímetra jafnfallinn snjór. Óvíst er hvort hægt verður að leika á gervigrasinu þar sem veðurspáin gerir ekki ráð fyrir batnandi aðstæðum fram eftir degi. Fulltrúar Þórs/KA og KSÍ hafa nú þegar ræðst við um framhaldið. Myndirnar hér að neðan voru teknar á áttunda tímanum í morgun.


Myndir: Haraldur Ingólfsson.