Fara í efni
Mannlíf

Bensi, Eitill og Leó ljóslifandi í Davíðshúsi

Það er fastur liður hjá mörgum að lesa eða hlusta á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson á jólum ellegar í aðdraganda þeirra. Nú gefst fólki tækifæri til að njóta sögunnar með nýstárlegum hætti í flutningi þriggja listamanna, Norðangarra, annars vegar í Davíðshúsi á morgun, laugardag, hins vegar á Skriðuklaustri í Fljótsdal annan sunnudag, 

„Fjalla-Bensi, forystusauðurinn Eitill og hundurinn Leó verða ljóslifandi í notalegu umhverfi skáldasafnanna í Davíðshúsi og Skriðuklaustri, heimilum Davíðs Stefánssonar og Gunnars Gunnarssonar 28. nóvember og 6. desember. Þar verður þetta sígilda bókmenntaverk flutt í anda gömlu húslestranna en þó með nýstárlegum hætti,“ segir í tilkynningu frá Minjasafninu á Akureyri.

Rödd og rými, spuni og texti

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Norðangarra, Minjasafnsins á Akureyri og Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri í Fljótsdal. „Á honum er fléttað saman upplestri hinnar sígildu jólasögu Aðventu og lifandi hljóðheimi sem mótast með spuna í rauntíma undir lestrinum. Innblásturinn er sóttur til gömlu íslensku húslestranna, en áhrif orðanna eru dýpkuð með tónlist, líkt og í kvikmyndum,“ segir í tilkynningunni. „Aðventa verður lesin upp í heild sinni á meðan hljóðheimur er skapaður undir sögunni í rauntíma af tónlistarfólki Norðangarra. Þar mætast rödd og rými, spuni og texti í áhrifamikilli upplifun sem leiðir hlustendur í gegnum sögu hins sanna jólaanda: fórnfýsi, samkenndar, góðmennsku og vináttu.“

Í kvikmyndum er tónlist markvisst notuð til að búa til stemningu, segir í tilkynningunni. „Á húslestrinum er ímyndunarafl áheyrenda virkjað til að gæða Fjalla-Bensa, Eitil og Leó lífi. Hughrif hlustenda verður kvikmyndin sjálf sem tónlist Norðangarra undirstrikar.“

Listamennirnir sem koma fram undir heitinu Norðangarri eru Erla Dóra Vogler söng- og leikkona, Þórður Sigurðarson píanóleikari og Jón Þórsteinn Reynisson harmonikkuleikari.  

„Sum okkar í Norðangarra hafa hlustað á Aðventu fyrir hver jól í fleiri ár, jafnvel oftar en einu sinni. Ég er sjálf frá Egilsstöðum og hef elskað að mæta og hlusta á upplestur á Skriðuklaustri,“ segir Erla Dóra um tilurð gjörningsins. „Mér finnst fátt notalegra en að láta lesa fyrir mig og þeim mun betra ef það er lifandi flutningur! Þessi hugmynd þróaðist sem sagt út frá ást á sögunni, löngun til að lesa hana upp og því hve yndislega Jón Þorsteinn og Þórður geta spunnið tónlist saman.“

  • HVAR? HVENÆR? HVE LENGI?
    Davíðshús – laugardag 28. nóvember kl. 13
    Skriðuklaustur – sunnudag 6. desember á  kl. 13
    Viðburðurinn tekur um tvær og hálfa klukkustund í flutningi.
    „Gestir eru hvattir til að hafa handavinnu meðferðis til að auka enn á húslestrarstemninguna. Aðgangur ókeypis – Verið öll velkomin,“ segir í tilkynningu.

Styrktaraðilar: Örvar, styrktarsjóður menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytis, Akureyrarbær, Norðurorka, Gistihúsið Egilsstöðum og veitingastaðurinn Frú Nielsen