Fara í efni
Menning

Barnamenning, Andrea og Prettyboitjokko

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Barnamenningarhátíð er hafin, og nóg á seyði fyrir unga fólkið í bland við aðra viðburði. HÉR má skoða viðburðadagatal Barnamenningarhátíðar.

 

Tónleikar

Listasýningar

  • Listasmiðja með Björk Viggósdóttur sem sýnir um þessar mundir á Listasafninu - Hreyfing fyrir sjón. Smiðjan er fyrir börn í 3.-6. bekk og er kennt laugardag og sunnudag 11. og 12. apríl á milli 11-13. Barnamenningarhátíð, ókeypis þáttaka en skráning nauðsynleg.
  • Kattakverfið, myndlistarsýning Örnu G Valsdóttur og Aðalsteins Þórssonar í Deiglunni, Listagilinu á Akureyri. 11. - 19. apríl.
  • Sögur á iði - Sýning fjöltyngdra barna á Leikskólanum Iðavelli - sýnt á Amtsbókasafninu 8. - 30. apríl. Hluti barnamenningarhátíðar.
  • Erlingur Valgarðsson/elli - Útlínur og form, myndlistarsýning í Mjólkurbúðinni. Opið 8. - 12. apríl á milli 15-18.
  • Tales from moss and fern - myndlistasýning Terezu Kocián á Leyni. Opið á opnunartíma Leyni, 13-23, til 23. apríl. 
  • Saga Íslands: 2. hluti - Eiríkur Páll Sveinsson prentaði út internetið í árdaga þess.
  • Úlfur Logason - Guð launi þér – Myndlistarsýning.
  • Hughrif - Litir - Form I - Valin verk fyrir sköpun og fræðslu.
  • Ævintýraglugginn - GLUGGINN Hafnarstræti 88. Þreföld afmælisveisla, barnafmæli, dúkku- og dýraafmæli og barbíafmæli. Sýningin er uppi til. 1.maí.
  • Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
  • Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
  • Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
  • Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.

 

May be a graphic of skateboard and text

Barnamenningarhátíð er hafin og stendur út apríl. Fullt af spennandi viðburðum fyrir alla fjölskylduna. 

Leiksýningar

  • Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, fimmtudag 10. apríl og laugardag 11. apríl kl. 20.00. Síðustu sýningar.
  • Manndýr - Þáttökusýning á barnamenningarhátíð. Rósenborg, laugardaginn 11. apríl kl. 13 og 15.30.
  • Átta konur - Leikfélag Hörgdæla að Melum. Föstudag 10. apríl og laugardag 11. mars kl. 20.00. Síðasta sýningarhelgi.
  • Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Síðasta sýningarhelgi. Sýningar föstudaginn 10. apríl og laugardag 11. apríl kl. 20.00.

 

Viðburðir

  • Leirmótun fyrir börn og fullorðna - barnamenningarhátíð. Leiðbeinandi er Elín Berglind Skúladóttir. Laugadagurinn 11. apríl kl. 9-13. Hluti barnamenningarhátíðar, ekkert gjald en skráning nauðsynleg.
  • Myndasögur og mangagerð - Fyrir 13-15 ára. Margrét Sóley leiðbeinir. Barnamenningarhátíð - ókeypis inn en skráning nauðsynleg. Laugardaginn 11. apríl kl. 10-16 og sunnudagur 12. apríl kl. 10-15.
  • 20 ár í leik og list - leikskólinn Hólmasól. Afmælissýning á Amtsbókasafninu í apríl. Hluti barnamenningarhátíðar.
  • Dansnámskeið frá Bunnyverse Company - Skapandi námskeið fyrir krakka 7-10 ára. Sunnudaginn 12. apríl kl. 13-14 í íþróttahúsi Oddeyrarskóla. Hluti barnamenningarhátíðar, skráning óskast.
  • Bar-svar Landverndar á Götubarnum - laugardaginn 11. apríl kl. 18.00.
  • Salsakvöld og ókeypis prufutími í salsa - Vamos. Fimmtudaginn 9, april kl. 20.00.
  • Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
  • Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 24. mars er næsti hittingur.
  • Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
  • Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.
 

Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.