Bæjarstjórn samþykkti nýja lýðheilsustefnu
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti samhljóða nú í vikunni Lýðheilsustefnu Akureyrarbæjar 2026-2030, ásamt áhersluatriðum fyrir aðgerðaáætlun, en stefnunni er síðan ætlunin að fylgja eftir með árlegri aðgerðaáætlun. Í stefnunni er einnig að finna ítarlega skilgreiningu á hugtökum, sem ætlað er að auðvelda vinnu við framkvæmd stefnunnar og aðgerðaáætlanir.
Lýðheilsustefna Akureyrarbæjar, sem hefur verið nokkuð lengi í smíðum, samanstendur af nokkrum meginatriðum ásamt skilgreiningu á hlutverki Akureyrarbæjar í stuðningi við margvíslega þátttöku allra íbúa, heildrænni sýn á heilsu, áhersluatriðum fyrir aðgerðaáætlun og skilgreiningum hugtaka.
Nokkur meginatriði stefnunnar eru:
- Lýðheilsustefna Akureyrarbæjar miðar að því að íbúar njóti góðrar heilsu og vellíðunar á öllum æviskeiðum.
- Stefnan leggur áherslu á að skapa samfélag þar sem íbúar búa við jöfnuð, tækifæri til heilbrigðs lífs og aðstæður sem styðja við sátt, samlyndi og þátttöku í samfélaginu.
- Sem heilsueflandi samfélag leggur Akureyrarbær áherslu á að hafa líðan íbúa í fyrirrúmi í allri stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Lýðheilsustefnan er ein af meginstoðum stefnumótunar sveitarfélagsins og fléttast saman við aðrar stefnumótandi áætlanir bæjarins.
- Öll starfsemi sveitarfélagsins, hvort sem hún er bein eða óbein, hefur áhrif á heilsu og líðan íbúa og því er mikilvægt að móta verklag sem tryggir að lýðheilsa sé höfð að leiðarljósi við ákvarðanatöku og áætlanagerð til framtíðar.
- Meginmarkmið stefnunnar er að byggja upp heilsueflandi og fjölskylduvænt samfélag þar sem umhverfi og þjónusta styðja við heilbrigða lifnaðarhætti, góða heilsu og vellíðan allra íbúa.
- Stefnan hefur það að leiðarljósi að grunnur góðrar lýðheilsu eru góð samskipti sem byggja á virðingu, öryggi, hlýju, nærveru og ábyrgð. Stefnt er að því að fjölga tækifærum íbúa og gesta til reglulegrar hreyfingar sem mikilvægrar forvarnar og vinna þar með að auknu heilbrigði í samfélaginu og efla félagsauð þess
Hlutverk Akureyrarbæjar er að styðja við margvíslega þátttöku allra íbúa, sem er grunnur að góðri lýðheilsu.
- Íþróttir og hreyfing eru veigamiklir þættir í lífi hvers einstaklings. Allt íþróttastarf, jafnt almenningsíþróttir sem og keppnis- og afreksíþróttir, er atvinnuskapandi og tengist náið hagsæld og félagslegum auði byggðarlaga.
- Regluleg hreyfing er líkleg til að draga úr kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Hún eykur framleiðni, styrkir skólastarf, dregur úr fjarveru frá starfi, og hvetur til samvinnu og samstöðu. Sem forvörn getur íþróttaiðkun verið ein hagkvæmasta og áhrifaríkasta leiðin að bættri lýðheilsu.
- Hlutverk Akureyrarbæjar er að styðja við og efla íþrótta-, menningar- og tómstundastarf í bæjarfélaginu. Markmiðið er að allir íbúar hafi jöfn tækifæri til þátttöku, hreyfingar og félagslegrar virkni. Jafnframt verði skapaðar aðstæður sem styðja við öflugt íþróttastarf, allt frá almennri þátttöku til keppnis- og afreksíþrótta, í samstarfi við íþróttahreyfinguna, skóla og aðra hagaðila.
- Þá er þátttaka allra í margvíslegu menningar- og félagsstarfi einn af grundvallarþáttum lýðheilsu. Hún vinnur gegn félagslegri einangrun, opnar farveg fyrir sköpunargleði fólks, eflir samkennd, gefur tilverunni tilgang og styrkir heilbrigt og jákvætt jafnvægi einstaklinga og samfélags
Aðgerðaáætlun
Í lýðheilsustefnunni er einnig aðgerðaáætlun þar sem við val á aðgerðum er lögð áhersla á þrjá meginþætti: líkamlega heilsu, andlega og félagslega vellíðan. Þar er einnig tekið mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem er alþjóðleg áætlun um að bæta lífsgæði, vernda jörðina og tryggja réttlæti og jöfnuð.
Í stefnunni kemur fram að aðgerðir sem sveitarfélagið velur og innleiðir skuli byggja á eftirfarandi lykiláherslum:
- Samfelld þjónusta: Tryggja að þjónusta og stuðningur fylgi einstaklingum á öllum æviskeiðum, með samfellu milli kerfa og stofnana.
- Jafnrétti og aðgengi: Öll úrræði skulu vera aðgengileg öllum, með sérstakri áherslu á viðkvæma hópa eins og fatlað fólk, eldri borgara, innflytjendur og aðra sem standa höllum fæti í samfélaginu.
- Samráð við íbúa: Tekið skal tillit til þarfa fólks á mismunandi æviskeiðum og úrræði þróuð í samvinnu við íbúa, með virku samtali og þátttöku.
- Heilbrigt og öruggt umhverfi: Aðgerðir á sviði íþrótta, tómstunda og félagsstarfs skulu stuðla að öruggu, faglegu og heilsueflandi umhverfi. Velferð þátttakenda skal höfð að leiðarljósi með áherslu á forvarnir gegn brottfalli, vernd gegn ofbeldi og áreitni.