Fara í efni
Fréttir

„Auðveldar líf þúsunda eldri borgara“

Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara, fagnar mjög breytingum á gildistíma ökuskírteina eldri ökumanna sem samþykkt var á Alþingi nýverið. „Með lagabreytingunni er komið til móts við kröfur sem eldri borgarar hafa lengi sett fram um sanngjarnari og nútímalegri reglur um endurnýjun ökuskírteina,“ skrifar Björn í grein sem akureyri.net birtir í dag.

„Til að setja breytinguna í samhengi má nefna að einstaklingur sem nær 70 ára aldri getur samkvæmt nýju reglunum þurft að endurnýja ökuskírteini sitt aðeins tvisvar á næstu tuttugu árum, í stað fjórtán skipta samkvæmt eldra kerfinu. Það er gríðarleg breyting sem mun auðvelda líf þúsunda eldri borgara,“ skrifar formaðurinn.

Grein Björns Snæbjörnssonar: Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn