Menning
Átta konur, Jónas Sig og Jón Nordal
04.03.2026 kl. 20:00
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Leiksýningar
- Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, föstudag og laugardag 6. og 7. mars kl. 20.00.
- Átta konur - Frumsýning hjá Leikfélagi Hörgdæla að Melum. Fimmtudaginn 5. mars kl. 20:00. 2. og 3. sýning föstudag og laugardag 6. og 7. mars kl. 20.00.
- Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Sýningar föstudag og laugardag, 27. og 28. feb kl. 20.00.
Tónleikar
- Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heiðrar Jón Nordal – Hamraborg í Hofi, sunnudaginn 8. mars kl. 16:00.
- Jónas Sig & Ritvélar framtíðarinnar - Græni hatturinn, föstudags- og laugardagskvöld 6. og 7. mars kl. 21:00.
- Örtónleikar Karlakórsins Akureyrar Geysis á Vitanum – Laugardagskvöldið 7. mars kl. 17:30.
Viðburðir
- Ilmur, angan og fnykur: Ýmis lykt í íslenskum heimildum - fyrirlestur sagnfræðingsins Ragnhildar Bjartar Björnsdóttur á Minjasafninu. Hluti fyrirlestraraðarinnar Fortíðin í nýju ljósi. Fimmtudaginn 5. mars kl. 17:00.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 10. mars er næsti hittingur.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

Sýningin Sköpun bernskunnar 2026 var opnuð síðustu helgi. Myndir: Listak
Listasýningar
- Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Vítahringur / Vicious circle - Listasýning Ólafs Sveinssonar og Boaz Yosef Friedman í Mjólkurbúðinni. Opið laugardag 28. feb og sunnudag 1. mars á milli 14-17.
- Litasinfóníur - myndlistasýning Rósu Njálsdóttur á Bókasafni HA. Þar eftir er opið á opnunartíma bókasafnsins.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.