Atlantic Quintet - fyrsta liðamótið í BJJ
Fyrsta liðamót í brasilísku Jiu-Jitsu (BJJ), Atlantic Quintet 2026, var haldið hjá Atlantic á Akureyri á dögunum.
Til upplýsingar fyrir lesendur sem ekki þekkja til í íþróttinni er Quintet frábrugðið hefðbundnum einstaklingsmótum í BJJ að því leyti að keppendur glíma fyrir hönd liðsins. Fyrst mætast einn keppandi frá hvoru liði og sigurvegari glímunnar heldur áfram og mætir næsta keppanda andstæðinganna, heldur þannig áfram þar til hann gerir jafntefli eða tapar, eða þá að hann nær að vinna sig í gegnum allt lið andstæðinganna.
„Keppnisformið setur því skemmtilegan svip á íþróttina þar sem ekki reynir eingöngu á getu hvers keppanda heldur einnig á liðsheild, taktík og uppröðun keppenda. Ein glíma getur breytt stöðunni hratt og einn keppandi getur jafnvel náð að vinna sig í gegnum marga andstæðinga í röð,“ segir í frétt Atlantic um mótið. Þar kemur fram að mótið sem haldið var um liðna helgi sé það fyrsta sinnar tegundar hér á landi og hafi verið góð stemning í húsinu frá upphafi til enda.

Sigurliðið frá Mjölni, Frankaher Deathsquad. Mynd: figinphoto.
Lið frá Mjölni í Reykjavík, Frankaher Deathsquad, stóð uppi sem sigurvegari mótsins og þar með fyrsta liðið til að vinna BJJ liðamót af þessu tagi hér á landi. Mjölnisliðið var skipað þeim Breka Harðarsyni, Jóni Frank Jóhannessyni og Baltasar Diljan Rúnarssyni.
Breki Harðarson úr Mjölni og Ari B. Ring frá Reykjavík MMA eigast við. Mynd: figinphoto
Þá kemur fram í frétt Atlantic að Ari B. Ring frá Reykjavík MMA hafi átt uppgjafartak (submission) mótsins þegar hann kláraði eina af glímum sínum með öflugu „toe hold“ eftir aðeins örstutta viðureign. Andreas Blensner frá BJJ North var jafnframt valinn stemningskeppandi mótsins fyrir góða frammistöðu innan vallar og mikla hvatningu og liðsstuðning utan hans.
Aðstandendur Atlantic segja ljóst að mótið verði endurtekið og þegar er farið að horfa til næsta liðamóts undir yfirskriftinni Atlantic Quintet – Winter.

Hér eigast við Agnar úr Atlantic og Andreas frá BJJ North á Húsavík. Mynd: figinphoto.