Fara í efni
Fréttir

Árlegir Bíladagar á Akureyri í vikunni

Íslandsmót í drifti er meðal viðburða á Bíladögum í ár. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Bíladagar, árleg hátíð bílaáhugamanna, hefjast á morgun, 17. júní, og standa til laugardags, 19. júní, þegar bílasýningu í Boganum lýkur, en hún hefst 17. júní að vanda.

Fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarstofu, Bílaklúbbi Akureyrar, umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili funduðu nýverið um Bíladaga 2021 í því skyni að allt geti gengið sem best á hátíðinni.

Samkvæmt upplýsingum frá Akureyrar verður mikil áhersla lögð á að allir virði siðareglur Bíladaga og að tekið verði hart á þeim brotum sem kunna að koma upp, líkt og gert hefur verið síðustu sumur. Þá gildir einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.

Umræddar siðareglur eru þessar:

  • Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt

Í tilkynningu segir að Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verð sýnilegt á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram. Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. „Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar hafa komið upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og óvarlegan akstur sem er að sjálfsögðu bannaður eins og ávallt.“

Hér má sjá dagskrá Bíladaga. 

Hópurinn sem fundaði í aðdraganda Bíladaga, fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarstofu, Bílaklúbbi Akureyrar, umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili. Ljósmynd: Ragnar Hólm.