Andvíg sjókvíaeldi og vindorkuveri
Kjördæmaþing Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs (VG) í Norðausturkjördæmi er andvígt uppbyggingu vindorkuversins Hnotasteins, sem fyrirhugað er á Hólaheiði á Melrakkasléttu, og krefst þess að öll áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði verði stöðvuð. Ályktanir þar að lútandi voru samþykktar á kjördæmaþingi nýverið.
Ásrún Ýr Gestsdóttir frá Hrísey var kjörin formaður kjördæmaráðsins á þinginu. Guðlaug Björgvinsdóttir frá Reyðarfirði verður ritari og Sóley Björk Stefánsdóttir frá Akureyri gjaldkeri. Aðrir í stjórn eru Aldey Unnar Traustadóttir frá Húsavík, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir frá Akureyri, Klara Mist Pálsdóttir frá Ólafsfirði og Sigtryggur Ellertsson frá Akureyri.
Andstaða við vindorkuver á Hólaheiði
Í fyrri ályktuninni lýsir kjördæmaþingið andstöðu við uppbyggingu vindorkuversins Hnotasteins, sem fyrirhugað er á Hólaheiði á Melrakkasléttu. Þar er lögð áhersla á að virða þurfi rammaáætlun og vandað mat á umhverfislegum og samfélagslegum áhrifum áður en ákvarðanir eru teknar um nýtingu lands.
Í ályktuninni segir að ekki eigi að þrýsta einstökum kostum úr biðflokki rammaáætlunar yfir í nýtingarflokk fyrr en nægileg gögn liggja fyrir og áhrif hafa verið metin til fulls. Telur kjördæmaþing VG að slíkt geti grafið undan trúverðugleika ferlisins og þeirri sátt sem rammaáætlun eigi að tryggja.
Jafnframt er bent á að vindorkuver á Hólaheiði yrði umfangsmikið inngrip í víðfeðmt landsvæði og hefði áhrif á landslag, lífríki og upplifun fólks af svæðinu. Í ályktuninni er tekið fram að byggðaþróun, raforkuöryggi og atvinnuuppbygging séu mikilvæg markmið, en þeim þurfi að ná í sátt við náttúruvernd og lýðræðislega ákvarðanatöku.
Vilja stöðva öll áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Í seinni ályktuninni krefst kjördæmaþingið þess að öll áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði verði stöðvuð.
Þingið lýsir þar yfir stuðningi við baráttu fulltrúa VG í sveitarstjórn Múlaþings og VÁ, félags um vernd fjarðarins, gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi. Jafnframt er vísað til mótmæla að undanförnu og þess samstöðumáttar sem þau hafi sýnt.
Í ályktuninni er lögð áhersla á að stjórnvöld hlusti á heimafólk og að viðkvæmt lífríki fjarðarins verði ekki látið víkja fyrir umfangsmikilli atvinnustarfsemi.